Hleð spilara!
Birgðatrygging
Birgðatrygging er mikilvæg þeim fyrirtækjum sem framleiða eða flytja inn afurðir og veitir hún vernd á birgðum þeirra.
Tryggingin bætir tjón á birgðum, m.a. vegna bruna, vatns eða þjófnaðar. Það sem aðallega er tryggt í birgðatryggingu eru ýmiskonar afurðir, s.s. fiskur, kjöt og aðrar unnar sem og óunnar kjötvörur.
Birgðatrygging hentar sérstaklega fyrirtækjum og framleiðendum þar sem birgðastaða getur breyst verulega á milli mánaða og um er að ræða háar fjárhæðir. Ef um lægri fjárhæðir er að ræða og minni sveiflur mælum við frekar með brunatryggingu lausafjár.
Brunatrygging
Eldsvoði, elding sprenging
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Eldsvoða. Það telst ekki eldsvoði þegar hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
- Eldingar.
- Sprengingar.
Vátryggingin bætir ekki tjón:
- Sem verður vegna vinnu með sprengiefni við verklegar framkvæmdir.
Sótfall
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Sótfalls sem verður skyndilega og óvænt frá viðurkenndu kynditæki eða eldstæði.
Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum:
- Sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman fyrir við notkun.
Loftför
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Loftfara og hluta sem frá þeim falla.
Slökkvi- og björgunaraðgerðir
Vátryggingin bætir:
- Tjón og kostnað vegna slökkvi- og björgunaraðgerða þegar markmið með ráðstöfunum er að forðast eða takmarka tjón sem fellur undir vátrygginguna og ráðstafanirnar teljast sérstakar og réttlætanlegar.
- Kostnað vegna nauðsynlegs flutnings á hinum vátryggðu birgðum í sambandi við bótaskylt tjón.
- Birgðir sem glatast við slökkvi- og björgunaraðgerðir.
Vatnstjónstrygging (valkvæð)
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Vatns sem óvænt og skyndilega streymir úr leiðslum hússins og á upptök innan veggja hússins.
- Vatns sem flæðir óvænt og skyndilega frá tækjum sem fasttengd eru leiðslum hússins.
- Yfirborðsvatns sem orsakast af skyndilegu úrhelli eða asahláku og vatnsmagn verður svo mikið að frárennslisleiðslur ná ekki að flytja það frá. Hafa skal til hliðsjónar við ákvörðun bótaskyldu hvort almennt eignatjón hafi orðið á tjónssvæðinu af völdum úrhellis- og/eða asahláku er vátryggingaratburðurinn átti sér stað.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón af völdum utanaðkomandi vatns, svo sem grunnvatns, úrkomu, flóða, sjávarfalla eða vatns frá svölum, þökum, þakrennum eða frárennslisleiðslum þeirra.
- Tjón af völdum vatns sem þrýstist upp úr skolp- eða frárennslisleiðslum eða ef skolpleiðslur geta skyndilega ekki flutt allt það vatn er að berst, þó með þeirri undantekningu ef leiðsla stíflast eða springur innanhúss.
- Tjón af völdum langvarandi raka eða vatnsleka.
- Tjón af völdum byggingarvinnu eða viðhalds, þar með talin vinna við vatnslagnir.
- Tjón af völdum sjávarflóða, flóða frá stöðuvötnum, ám eða lækjum.
Þjófnaðar- og ránstrygging (valkvæð)
Vátryggingin bætir tjón vegna:
- Þjófnaðar og skemmda á hinum vátryggðu birgðum við innbrot í húsnæði á vátryggingarstað.
- Skemmda sem verða á húseign í eigu vátryggðs vegna innbrots þar sem hinar vátryggðu birgðir eru, með allt að 10% af vátryggingarfjárhæð birgða á viðkomandi vátryggingarstað ef bætur eru greiddar samkvæmt skilmála.
- Ráns þegar vátryggðum birgðum er rænt af vátryggðum eða starfsmönnum hans á vátryggingarstað.
- Hámarksbætur nema 10% af vátryggingarfjárhæð en geta þó aldrei orðið hærri en hámarksbætur sem koma fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
- Það telst rán þegar hinir vátryggðu munir eru teknir með líkamlegu ofbeldi eða hótun um að beita því þegar í stað, sbr. 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Vátryggingin bætir ekki tjón:
- Á húseigninni sem stafar af eldsvoða enda þótt hann verði í sambandi við innbrot.
Óveðurstrygging (valkvæð)
Vátryggingin bætir:
- Tjón af völdum óveðurs þegar vindhraði nær 28,5 metrum á sekúndu. Til óveðurstjóna teljast eingöngu tjón á vörubirgðum innanhúss þegar vindur hefur rofið þak, glugga eða aðra hluta hússins. Séu ekki fáanlegar viðurkenndar upplýsingar um vindhraða á tjónsstað er tjónið varð skal hafa til hliðsjónar við ákvörðun bótaskyldu hvort almennt eignatjón hafi orðið á svæðinu af völdum veðurs er vátryggingaratburðurinn átti sér stað.
Vélstöðvunartrygging kælikerfis (valkvæð)
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Óviðráðanlegrar bilunar kælikerfis eða leka frystivökva úr því.
Vátryggingin bætir ekki tjón:
- Á birgðum sem voru gallaðar þegar þeim var komið fyrir í geymslu.
Lekatrygging úr tanki (valkvæð)
Vátryggingin bætir:
- Tjón á vörubirgðum sem verður við leka úr tanki. Skylt er að halda skrá yfir birgðir í hverjum tanki og skal skrá breytingar þegar þær verða. Skrár þessar skulu vera til reiðu fyrir félagið þegar þeirra er óskað.
Sjálfsíkveikjutrygging á heyi og mjöli (valkvæð)
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Ofhitunar (kolunar) í heyi eða mjöli, þótt eldur verði ekki laus.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
