Hleð spilara!

Eignatryggingar

Eignatryggingar VÍS eru mjög fjölbreyttar og veita vernd gegn tjónum m.a. af völdum bruna, vatns og innbrots sem kunna að verða t.d. á lausafjármunum, fasteignum og vinnuvélum. Að auki tryggjum við tapaða framlegð vegna rekstrarstöðvunar af völdum bótaskylds tjóns á vátryggðum eignum.


Eignatryggingar skiptast í þrjá flokka, fasteignir, lausajármuni og rekstrarstöðvun.

Húseignir

Húseignir eru af öllum stærðum og gerðum og bjóðum við margar tryggingar sem sniðnar eru að þinni eign.Meira

Lausafé

Miklir fjármunir eru oft bundnir í lausafé fyrirtækja og því mikilvægt að tryggja slíka hluti rétt.Meira

Rekstrarstöðvun

Tjón sem valda rekstrarstöðvun geta reynst kostnaðarsöm og ættu sem flest fyrirtæki að hafa tryggingar sem veita vernd gegn slíkum óhöppum.Meira

Húseigendatrygging

Húseigendatrygging er mikilvæg öllum húseigendum og veitir hún víðtæka vernd gegn tjónum á húseignum.Meira

Húseigendatr. íbúðarhúsnæðis

Mikilvægt er öllum húseigendum að hafa í gildi húseigendatryggingu og tekur hún til tjóna á húseignum auk þess að fela í sér ábyrgðar- og málskostnaðartryggingu.Meira

Brunatrygging húseigna

Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging og bætir hún tjón vegna eldsvoða.Meira

Viðbótartrygging húseigna

Viðbótarbrunatrygging veitir vernd gegn brunatjónum fari endurbyggingarkostnaður umfram skráð brunabótamat.Meira

Óveðurstrygging húsa

Óveðurstrygging veitir öllum húseigendum vernd gegn fokskemmdum á sínum húsum.Meira

Verktakatrygging

Verktakatrygging er ætluð verktökum og byggingaraðilum og veitir hún vernd gegn tjónum á þeim mannvirkjum sem þeir eru að byggja.Meira

Brunatr. húsa í smíðum

Smíðatrygging er löboðin trygging fyrir þá sem eiga húseign í smíðum og bætir hún tjón vegna eldsvoða.Meira

Byggingatrygging

Byggingatrygging er eingöngu fyrir einstaklinga og hentar vel þeim sem standa í byggingaframkvæmdum. Tryggingin bætir tjón vegna eldsvoða, vatns og óveðurs ásamt því að innihalda slysa- og ábyrgðartryggingu.Meira

Sumarbústaðatrygging

Allir sumarhúsaeigendur ættu að hafa í gildi sumarbústaðatryggingu sem tekur til tjóna á bústaðnum og innbúi.Meira

Glerísetningartrygging

Glerísetningartrygging er hentug þeim sem standa í byggingaframkvæmdum eða viðhaldsvinnu og bætir hún tjón á gleri í geymslu á byggingarstað eða við ísetningu.Meira

Birgðatrygging

Birgðatrygging er mikilvæg þeim fyrirtækjum sem framleiða eða flytja inn afurðir og veitir hún vernd á birgðum þeirra.Meira

Glertrygging

Glertrygging tryggir allt gler sem búið er að koma fyrir á endanlegum stað.Meira

Gripatrygging

Gripatrygging er fyrir eigendur hrúta og greiðir hún bætur vegna dauða á gripnum.Meira

Landbúnaðartrygging

Allir bændur ættu að hafa landbúnaðartryggingu sem veitir þeim víðtæka vernd vegna búreksturs.Meira

Lausafjártrygging

Öll fyrirtæki ættu að huga að því að tryggja sína lausafjármuni og er lausafjártrygging sniðin að þeirri þörf.Meira

Peningatrygging

Peningatrygging er ætluð þeim sem eru að flytja peninga á milli staða og veitir þeim vernd gegn ýmis konar tjónum.Meira

Rafeindatækjatrygging

Rafeindatrygging er hugsuð fyrir eigendur rafeindatækja og veitir þeim vernd gegn margs konar tjónum eða óhöppum.Meira

Vélatrygging

Vélatrygging tryggir eigendur véla gegn ýmis konar tjónum eða óhöppum.Meira

Vinnuvélatrygging

Vinnuvélatrygging hentar öllum eigendum vinnuvéla og veitir þeim vernd gegn tjónum á vélunum.Meira

Víðtæk eignatrygging

Víðtæk eignatrygging er gjarnan tekin á einstaka dýra muni sem fólk tekur með sér vegna vinnu eða á ferðalögum, svo sem myndavélar, hljóðfæri, vídeoupptökuvélar og fleiri samskonar hluti.Meira

Ylræktartrygging

Fyrirtæki í gróðurhúsarækt ættu að huga að því að vera með ylræktartryggingu sem tekur til tjóna á ræktun þeirra.Meira

Rekstrarstöðvunartrygging

Flestum fyrirtækjum í verslun, þjónustu eða framleiðsluiðnaði er mikilvægt að hafa í gildi rekstrarstöðvunartryggingu.Meira

Aukakostnaðartrygging

Aukakostnaðartrygging er vernd gegn tilfallandi aukakostnaði vegna bótaskylds tjóns á lausafé atvinnurekanda sem verður til þess að rekstur stöðvast. Meira

Rekstrarst.tr. vegna véla

Er mikilvæg flestum framleiðslufyrirtækjum og bætir hún rekstrartap vegna rekstrarstöðvunar af völdum tjóna á vélum.Meira

Rekstrarst.tr. fyrir kúabú

Er hópvátrygging fyrir mjólkurframleiðendur innan Kaupfélags Skagfirðinga og bætir framlegðartap vegna rekstrarstöðvunar.Meira

Dæmi um tjón sem voru bætt

Rekstrarstöðvun í fyrirtæki

Snemma árs 2007 varð brunatjón í fyrirtæki. Rekstur stöðvaðist í nokkrar vikur sem leiddi til talsverðs framlegðartaps. Fyrirtækið var með resktrarstöðvunartryggingu í gildi ásamt aukakostnaðartryggingu sem greiddu bætur vegna tjónsins.

Bruni á bifreiðaverkstæði

Síðla árs 2007 var blysi hent inn um glugga bifreiðaverkstæðis með þeim afleiðingum að talsvert brunatjón varð innan dyra. Fyrirtækið var með brunatryggingu í gildi sem bætti tjónið.

Vatnstjón í heilsurækt

Í febrúar 2008 frostsprakk hitaelement í húsnæði heilsuræktar í Reykjavík. Tjón á innanstokksmunum vegna vatns hljóp á milljónum. Fyrirtækið er með lausafjártryggingu á tækjum innanhúss og fékk því tjónið bætt.

Innbrot í gleraugnaverslun

Í nóvember 2008 var brotist inn í gleraugnaverslun í Reykjavík í skjóli nætur með því að spenna upp hurð bak við húsnæðið. Fjölmörgum gleraugum var stolið og hljóp tjón verslunareigenda á milljónum. Verslunin er með lausafjártrygging á vörum sínum sem bætti tjónið.