Hleð spilara!

Veiðarfæratrygging

Veiðarfæratrygging er æskileg öllum útgerðum og tekur til tjóna á veiðarfærunum sjálfum um borð í skipinu.


Tryggingin bætir altjón ef veiðarfæri farast með skipinu. Einnig eru hlutatjón bætt ef skipið strandar, sekkur, því hvolfir eða það rekst á annað skip, fasta eða fljótandi hluti.

Veiðarfæratrygging er eingöngu seld þeim útgerðum sem eru með aðrar tryggingar hjá okkur.

Vátryggingin bætir:

  • Algert tjón ef veiðarfæri farast með skipinu
  • Algert tjón og hlutatjón ef þau stafa beinlínis af því að skipið strandar, sekkur, því hvolfir eða það rekst á annað skip, fasta eða fljótandi hluti.
  • Brunatjón
  • Þátttöku í samtjóni, samtjónskostnaði, hliðstæðum kostnaði og björgun.