Hleð spilara!
Húftrygging fyrir íslensk fiskiskip minni en 100 brl.
Tryggingin er ætluð útgerðum þiljaðra fiskiskipa undir 100,49 rúmlestir.
Tryggingin er samsett trygging úr tveimur liðum. Hún bætir annars vegar tjón á skipinu sjálfu og hins vegar innifelur þessi trygging ábyrgðartryggingu sem bætir tjón vegna ásiglingar skipsins. Húftrygging skipa bætir altjón eða tjón að hluta m.a. af völdum bruna, óveðurs, íss, strands eða skipbrots.
Nauðsynlegt er að hafa slysatryggingar sjómanna fyrir menn á bátnum til að haffæri sé veitt, þannig að sú trygging fylgir nær undantekningalaust með þessari tryggingu.
Vátryggingarfjárhæð er metin af Fjárhæðanefnd fiskiskipa hjá LÍÚ.
Húftrygging
Bótasvið vegna algers tjóns
Félagið greiðir bætur fyrir algert tjón ef:
- Skipið ferst eða verður fyrir svo miklum skemmdum að ekki er unnt að bjarga því eða gera við það eða kostnaður við að bjarga því og gera við það er hærri en vátryggingarfjárhæðin.
- Skipið hefur ekki komið fram þremur mánuðum eftir að síðast spurðist til þess eða áhöfnin hefur yfirgefið skipið og það ekki komið undir umráð vátryggðs innan þriggja mánaða frá því það var yfirgefið.
- Skipið er hernumið eða kyrrsett af erlendu ríki og ekki látið laust innan sex mánaða. Ákvæði þetta á ekki við um tjón sem hlýst af því að skip er gert upptækt í refsimáli, kyrrsett eða selt að kröfu skuldheimtumanna.
Bótasvið vegna tjóns að hluta
Vátryggingin bætir:
- Skemmdir á skipinu af völdum þess að það sekkur eða því hvolfir, einnig af völdum storms, sjávar, straums, íss, jarðskjálfta, snjóflóðs, aurskriðu, elds, sprengingar, eldingar, strands, árekstrar á grunn, skipbrots, veltu, áreksturs á annan fastan eða fljótandi hlut, með þeim takmörkunum sem ákveðnar eru í skilmálum þessum. Um skemmdir á vélum skipsins gilda sérstakar reglur, sbr. skilmála.
- Skemmdir á aðalvél skipsins ef eftirtaldir aðalhlutar hennar eyðileggjast af öðrum ástæðum en greinir í skilmála: Vélarblokk, stimplar, slífar, strokklok, kambás ásamt legum, tannhjól og ásar, forþjappa, sveifarás, sveifaráslegur og botnskál. Bætur miðast eingöngu við verð á nýjum vélarhlutum, en annar kostnaður greiðist ekki, t.d. vinna eða slippkostnaður. Bætur lækka um 6% fyrir hvert ár frá smíði vélarinnar í allt að 12 ár, en eigin áhættu samkvæmt skilmála skal ekki beitt.
- Tjón sem stafar af innbroti; þjófnað eða skemmdarverk.
- Tjón sem verða á bátnum við sjósetningu eða upptöku vegna skyndilegrar og óvæntrar óhappatilviljunar, svo og í flutningi að og frá geymslustað innan sama lögsagnarumdæmis.
- Tjón á bol báts úr trefjaplasti eða plastefnum þegar notaðar eru viðurkenndar aðferðir til viðgerðar. Það telst fullnaðarviðgerð þó um útlitsgalla sé að ræða.
- Kostnað við björgun og eðlilegan kostnað við ráðstafanir til að varna tjóni, sbr. þó ákvæði siglingalaga um takmörkun ábyrgðar.
- Þátttöku í sameiginlegu sjótjóni eins og slík þátttaka er ákveðin í York-Antwerpen reglunum.
Vátryggingin bætir ekki:
- Skemmdir á þeim hlutum skipsins sem efnisgalli, smíðisgalli eða viðgerðargalli er á.
- Tjón sem stafar af ófullnægjandi viðhaldi, fúa, þreytu, tæringu, sliti eða sambærilegum orsökum. Sama gildir um tjón sem rakið verður til hönnunargalla og/eða breytinga sem gera þarf á skipinu vegna hönnunargalla.
- Kostnað sem fylgir bótaskyldri tjónsviðgerð að því marki sem útgerðarmaður hefði sjálfur orðið að greiða hann fyrir eigin reikning vegna útgerðarinnar, viðhalds og/eða viðgerðar, ef hin bótaskylda viðgerð hefði ekki farið fram samtímis.
- Kostnað vegna yfir- og helgidagavinnu.
- Kostnað við að hreinsa og mála botn skipsins.
- Óbeint tjón, svo sem aflatjón og kostnað sem stafar af töf. Sama á við um starfsmannakostnað, hafnargjöld og eldsneytisnotkun meðan á viðgerð stendur.
- Sektir og önnur refsiviðurlög.
Ábyrgðartrygging
Vátryggingin bætir:
- Tjón sem vátryggt skip veldur með árekstri og tjón sem verður á annan hátt vegna mistaka við stjórnun þess, enda sé um að ræða beint líkams- eða munatjón sem vátryggður veldur með saknæmum og ólögmætum hætti.
- Kostnað við að fjarlægja flak skips þriðja aðila.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón starfsmanna eiganda eða útgerðarmanns hins vátryggða skips, né tjón eiganda afla eða annars sem skipið flytur.
- Tjón þriðja manns vegna ábyrgðar vátryggðs á skemmdum munum eða glataðra muna sem vátryggður hefur að láni, á leigu, til geymslu, sölu, flutnings eða eru af öðrum ástæðum í vörslu hans, þar á meðal muna sem vátryggður hefur tekið í heimildarleysi.
- Sektir og önnur refsiviðurlög.
- Óbeint tjón, svo sem aflatjón og kostnað sem stafar af töf.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
