Hleð spilara!

Aflatrygging

Aflatrygging er æskileg öllum útgerðum og tekur til tjóna á veiddum fiski.


Tryggingin bætir algert tjón á afla sem ferst með skipinu. Aflatrygging tekur einnig til altjóna og hlutatjóna ef það stafar beinlínis af því að skipið strandar, sekkur, því hvolfir eða það rekst á annað skip, fasta eða fljótandi hluti.

Vátryggingin bætir:

  • Algert tjón ef afli ferst með skipinu.
  • Algert tjón og hlutatjón ef það stafar beinlínis af því að skipið strandar, sekkur, því hvolfir eða það rekst á annað skip, fasta eða fljótandi hluti.
  • Brunatjón.
  • Þátttöku í samtjóni, samtjónskostnaði, hliðstæðum kostnaði og björgun.

Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum:

  • Styrjaldar, innrásar, hernaðaraðgerða, borgarrósta, uppreisnar, uppþots, verkfalls eða svipaðra aðgerða.
  • Kjarnabreytingar, jónandi geislunar, mengunar af geislavirkum efnum, kjarnaeldsneytis eða kjarnaúrgangsefnis.