Hleð spilara!

Aflatrygging - frystur afli

Tryggingin er æskileg öllum útgerðum með skip yfir 100 brl. og tekur til tjóna á veiddum fiski.


Tryggingin bætir tjón á afla sem ferst með skipinu. Aflatrygging tekur einnig til altjóna og hlutatjóna ef það stafar beinlínis af því að skipið strandar, sekkur, því hvolfir eða það rekst á annað skip, fasta eða fljótandi hluti. Einnig bætir hún tjón á afla vegna bilunar í frystitækjum af óviðráðanlegum orsökum. Trygging þessi er eingöngu tekin á þau skip yfir 100 brl. sem eru með húftryggingu hjá félaginu. Einnig bætir hún tjón á afla vegna bilunar í frystitækjum af óviðráðanlegum orsökum.

Vátryggingin bætir:

  • Algert tjón ef afli ferst með skipinu.
  • Algert tjón og hlutatjón ef þau stafa beinlínis af því að skipið strandar, sekkur, því hvolfir eða það rekst á annað skip, fasta eða fljótandi hluti.
  • Brunatjón.
  • Þátttöku í samtjóni, samtjónskostnaði, hliðstæðum kostnaði og björgun.
  • Tjón á frystum afla sem orsakast af sjóskaða, skyndilegum olíu- eða vatnsleka úr leiðslum skipsins, leka frystivökvans eða óviðráðanlegri bilun eða stöðvun frystivéla eða frystikerfis. Undanskilin eru tjón vegna breytinga á hitastigi nema bilun eða stöðvun frystivéla vari samfellt í það minnsta 24 klukkustundir.

Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum:

  • Styrjaldar, innrásar, hernaðaraðgerða, borgarrósta, uppreisnar, uppþots, verkfalls eða svipaðra aðgerða.
  • Kjarnabreytingar, jónandi geislunar, mengunar af geislavirkum efnum, kjarnaeldsneytis eða kjarnaúrgangsefnis.