Hleð spilara!

Lögboðin starfsábyrgðartrygging verðbréfamiðlana

Allir verðbréfamiðlarar verða að hafa starfsábyrgðartryggingu verðbréfamiðlana í gildi.


Tryggingin bætir viðskiptamanni verðbréfamiðlara almennt fjártjón er leiðir af gáleysi í störfum hans eða starfsmanna hans við verðbréfamiðlun.

Beiðni er forsenda tryggingar og tilboðs

Vátryggingin bætir:

  • Almennt fjártjón viðskiptamanns vátryggðs er leiðir af gáleysi störfum hans eða starfsmanna hans við verðbréfamiðlun.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans vegna starfa við verðbréfamiðlun.
  • Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
  • Líkamstjón og skemmdir á munum.