Hleð spilara!

Lögboðin ábyrgðartrygging farsala og flutningsaðila

Er fyrir öll íslensk skip sem flytja farþega í atvinnuskyni, á sjó, ám eða vötnum án tillits til stærðar


Tryggingin bætir tjón farþega sem hlýst af því að hann slasast eða lætur lífið meðan á ferðinni stendur. Tryggingin bætir einnig ef farangur týnist eða skemmist. 

Þetta er lögboðin trygging, sem gildir vegna farþega - en tryggir ekki skipverja

Vátryggingin bætir:

  • Tjón er leiðir af bótaábyrgð vátryggðs og hlýst af því að farþegi slasast eða lætur lífið eða farangur týnist eða skemmist meðan stendur á ferð þess skips sem tilgreint er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun og vátryggður sem farsali eða flutningsaðili ber ábyrgð á samkvæmt V. kafla siglingalaga nr. 34/1985 um flutning á farþegum og farangri og IX. kafla sömu laga um ábyrgð útgerðarmanns og takmörkun ábyrgðar. Með sömu skilyrðum er vátryggt gegn bótaskyldu sem stafar af seinkun í sambandi við flutning á farþega eða farangri. Vátryggingin gildir einnig um flutning milli skips og lands, enda sé þessi flutningur innifalinn í fargjaldinu eða flutningurinn fer fram með farartæki sem farsali leggur til.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem farsala eða flutningsaðila.
  • Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
  • Tjón sem verður áður en farþegi stígur á skipsfjöl og eftir þann tíma að hann er farinn frá borði.
  • Tjón sem annar aðili en vátryggður, er annast hluta flutnings samkvæmt farmsamningi, ber ábyrgð á.
  • Tjón á lifandi dýrum sem flutt eru sem farangur.
  • Tjón eða tap á peningum, verðbréfum eða öðrum verðmætum, t.d. gulli, silfri, úrum, gimsteinum, skartgripum eða listmunum, nema farsali hafi tekið við þeim til öryggisgeymslu