Hleð spilara!

Skaðsemisábyrgð

Skaðsemisábyrgðartrygging er mikilvæg öllum þeim sem selja, dreifa og/eða framleiða hverskonar vöru.

Tryggingin tekur til skaðabótaábyrgðar sem fellur á hinn vátryggða vegna slysa á mönnum eða skemmda á eignum af völdum hættulegra eiginleika vöru sem vátryggður framleiðir og/eða selur.

Hægt er að taka víðtæka vöruábyrgð sem valkvæða viðbót við trygginguna en hún bætir tjón á tjón á munum sem búnir eru til úr söluvöru vátryggðs, skeyttir eru eða blandaðir við hana eða eru tengdir við hana með öðrum sambærilegum hætti.

Vátryggingin bætir:

  • Beint líkams- eða munatjón þriðja manns af völdum vöru sem er haldin ágalla og sem vátryggður selur eða lætur á annan hátt af hendi, enda hafi tjónið orðið eftir að vátryggður afhenti söluvöruna. Um skaðabótaábyrgð vátryggðs fer eftir íslenskum lögum um skaðsemisábyrgð nr. 25/1991. Það er skilyrði fyrir greiðsluskyldu félagsins að tjóninu hafi verið valdið í starfsemi þeirri sem nefnd er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Skemmdir á söluvörunni sjálfri.
  • Tjón, útgjöld eða kostnað við að vátryggður tekur söluvöru aftur, býr til eða afgreiðir nýja vöru, gerir við, eyðileggur eða flytur á brott vöru eða gerir aðrar þess háttar ráðstafanir vegna galla á hinu selda. Sama á við um kostnað, útgjöld eða tjón vegna könnunar á því hvort söluvara sé gölluð eða hætta sé á að vátryggingaratburðurinn gerist, eða tjóns sem stafar af því að ekki er unnt að nota gallaða söluvöru.
  • Rekstrartap, afnotamissi eða annað óbeint tjón.
  • Tjón af völdum söluvöru sem notuð er við rekstur loftfars og á annað hvort þátt í flugslysi eða veldur hættu á því.
  • Tjón sem rekja má til asbests eða efnis sem inniheldur asbest að einhverju leyti.
  • Tjón sem rekja má til mengunar lofts, jarðar, gróðurs, vatns eða sjávar. Félagið greiðir þó bætur vegna slíks tjóns, ef það verður rakið til eins skyndilegs atburðar.
  • Tjón sem rekja má til tóbaks og tóbaksvara.
  • Tjón sem rekja má til vöru sem haldin er ágalla og er seld eða afhent eftir að sala hennar hefur verið bönnuð á markaði.
  • Sektir eða önnur refsiviðurlög.
  • Sérstakar refsikenndar bætur (punitive damages).
  • Tjón sem beint eða óbeint verður af völdum hryðjuverka vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. vegna sýkla og veira, eða þegar afleiðingar slyss verða meiri vegna framangreindra atriða.
  • Tap eða tjón sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta af:
  • Áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.
  • Umsjón með eða ráðgjöf um áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra.
  • Eftirliti, viðurkenningu, ákvörðun, staðfestingu eða áritun um aðstæður þar sem áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra skipta máli (þ.m.t. en þó ekki takmarkað við störf framkvæmdastjóra, stjórnarmanna og endurskoðenda að verkefnum sínum).
    • Undanþága þessi á við um allar tímaskráningar.

Með “tímaskráningu” er átt við tilgreiningu tíma sem byggist á almanakskerfi þegar tilgreiningin verkar sem upplýsingar, kóti, merki eða með hvers konar öðrum hætti í búnaði, kerfi eða samblandi þessa hvoru tveggja.

Með “búnaði” er átt við hvers konar vélar, tæki, vörur og aðra áþreifanlega hluti eða safn hluta, hvort sem um er að ræða fasteign eða lausafé, þ.m.t. en þó ekki takmarkað við vélbúnað tölva, hugbúnað eða samþætt rafeindakerfi (þ.m.t. örgjörvar og kísilflögur).

Með “kerfi” er átt við hvers konar upplýsingar, fyrirmæli eða safn þeirra og hvers konar miðla fyrir upplýsingar og fyrirmæli í tölvutæku formi, á pappír eða í formi geisla, bylgna, eðlisfræðilegra áhrifa, efnaferla eða á öðru óáþreifanlegu eða áþreifanlegu formi.

Víðtæk vöruábyrgð (valkvæð)

Vátryggingin bætir:

  • Tjón á munum sem búnir eru til úr söluvöru vátryggðs, skeyttir eru eða blandaðir við hana eða eru á annan sambærilegan hátt tengdir við hana og tjónið verður af völdum gallaðrar vöru sem vátryggður seldi eða lét á annan hátt af hendi og varð eftir að vátryggður afhenti söluvöruna. Það er skilyrði fyrir greiðsluskyldu félagsins að tjóninu hafi verið valdið vegna starfsemi þeirrar sem nefnd er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun og af völdum söluvöru sem þar er nefnd.
  • Greiðsluskylda félagsins samkvæmt skilmála takmarkast við bótaábyrgð sem beinlínis verður rakin til þess að fleygja verður eða gera við hlut sem búinn er til úr söluvöru vátryggðs eða tengdur henni eins og að ofan greinir eða að hluturinn verður dýrari í framleiðslu eða lækkar í verði. Bætur eru aðeins greiddar fyrir verðrýrnun hlutarins, aukakostnað við framleiðslu eða gerð hans eða beinan kostnað við viðgerð á honum. Eigi eru greiddar bætur fyrir annað tjón, útgjöld eða kostnað, t.d. vegna þess að senda þarf viðgerðarmenn eða aðra starfsmenn á vettvang, taka þarf hluti aftur, rannsaka eða flytja hluti sem búnir eru til úr söluvöru vátryggðs eða vara menn við hættu á slíkum hlutum. Ef skemmdir eða tjón hefur hlotist af söluvöru vátryggðs vegna muna sem getið er í skilmála ber að draga frá vátryggingarbótum andvirði söluvöru vátryggðs eins og það var miðað við ógallaða vöru.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Skemmdir á söluvörunni sjálfri.
  • Tjón, útgjöld eða kostnað við að vátryggður tekur söluvöru aftur, býr til eða afgreiðir nýja vöru, gerir við, eyðileggur eða flytur á brott vöru eða gerir aðrar þess háttar ráðstafanir vegna galla á hinu selda. Sama á við um kostnað, útgjöld eða tjón vegna könnunar á því hvort söluvara sé gölluð eða hætta sé á að vátryggingaratburðurinn gerist, eða tjóns sem stafar af því að ekki er unnt að nota gallaða söluvöru.
  • Rekstrartap, afnotamissi eða annað óbeint tjón, sbr. þó skilmála.
  • Tjón af völdum söluvöru sem notuð er við rekstur loftfars og á annað hvort þátt í flugslysi eða veldur hættu á því.
  • Tjón sem rekja má til asbests eða efnis sem inniheldur asbest að einhverju leyti.
  • Tjón sem rekja má til mengunar lofts, jarðar, gróðurs, vatns eða sjávar. Félagið greiðir þó bætur vegna slíks tjóns, ef það verður rakið til eins skyndilegs atburðar.
  • Tjón sem rekja má til tóbaks og tóbaksvara.
  • Tjón sem rekja má til gallaðrar vöru og er seld eða afhent eftir að sala hennar hefur verið bönnuð á markaði.