Ábyrgðartrygging útgerðarmanna
Ábyrgðartrygging útgerðarmanna er vernd gegn skaðabótakröfum sem kunna að falla á útgerðina.
Tryggingin tekur til skaðabótaábyrgðar, sem fellur á vátryggða útgerð samkvæmt íslenskum réttarreglum ef tjón hafa orðið vegna gáleysis skipverja eða vanbúnaðar skips. Bætur greiðast vegna slysa á fólki og/eða skemmda á munum í eigu annarra aðila en starfsmanna útgerðarmanns eða eigenda.
Ef tjón verður af völdum áreksturs getur útgerðarmaður meðal annars tryggt sig með húftryggingu fiskiskipa.
Vátryggingin bætir tjón vátryggðs vegna skaðabótaábyrgðar sem fellur á hann eftir íslenskum réttarreglum sökum:
- Líkamstjóns þriðja manns sem rakið verður til gáleysis skipverja við störf í þágu skipsins og vanbúnaðar eða bilunar skipsins sjálfs eða tækja þess.
- Skemmda á munum í eigu annarra aðila en starfsmanna vátryggðs eða eiganda afla, farms eða annars sem skipið flytur ef skemmdirnar verða af sömu orsökum og greinir í skilmála. Það er skilyrði fyrir greiðsluskyldu félagsins samkvæmt þessum lið að tjónsatvikið beri að höndum um borð í skipinu eða á bryggju.
Vátryggingin bætir ekki:
- Líkamstjón sem verður við út- eða uppskipun þegar aðrir en áhöfn skipsins vinna verkið.
- Útgjöld vegna læknishjálpar, hjúkrunar, ferðakostnaðar eða útfararkostnaðar samkvæmt sjómannalögum.
- Eigur skipverja sem glatast eða skemmast við sjóslys, eldsvoða í skipi eða við annað sjótjón.
- Sektir, málskostnað eða önnur útgjöld í sambandi við refsimál.
- Tjón sem rekja má til asbests eða efnis sem inniheldur asbest að einhverju leyti.
- Tjón af völdum hryðjuverka vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. vegna sýkla og veira, eða þegar afleiðingar slyss verða meiri vegna framangreindra atriða.
- Tjón er leiðir af skaðabótaábyrgð sem fellur á útgerðarmann fiskiskips vegna starfsemi í landi, t.d. beitingar, frágangs, meðhöndlunar veiðarfæra eða annarra skyldra starfa. Þessa áhættu má vátryggja sérstaklega.
- Endurkröfu frá almannatryggingum.
- Tjón vegna skaðabótaábyrgðar vátryggðs sem hann getur vátryggt sig gegn með venjulegum skilmálum húftryggingar fyrir hliðstæð skip.
- Tap eða tjón sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta af:
- Áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.
- Umsjón með eða ráðgjöf um áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra.
- Eftirliti, viðurkenningu, ákvörðun, staðfestingu eða áritun um aðstæður þar sem áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra skipta máli (þ.m.t. en þó ekki takmarkað við störf framkvæmdastjóra, stjórnarmanna og endurskoðenda að verkefnum sínum).
- Undanþága þessi á við um allar tímaskráningar.
Með “tímaskráningu” er átt við tilgreiningu tíma sem byggist á almanakskerfi þegar tilgreiningin verkar sem upplýsingar, kóti, merki eða með hvers konar öðrum hætti í búnaði, kerfi eða samblandi þessa hvoru tveggja.
Með “búnaði” er átt við hvers konar vélar, tæki, vörur og aðra áþreifanlega hluti eða safn hluta, hvort sem um er að ræða fasteign eða lausafé, þ.m.t. en þó ekki takmarkað við vélbúnað tölva, hugbúnað eða samþætt rafeindakerfi (þ.m.t. örgjörvar og kísilflögur).
Með “kerfi” er átt við hvers konar upplýsingar, fyrirmæli eða safn þeirra og hvers konar miðla fyrir upplýsingar og fyrirmæli í tölvutæku formi, á pappír eða í formi geisla, bylgna, eðlisfræðilegra áhrifa, efnaferla eða á öðru óáþreifanlegu eða áþreifanlegu formi.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
