Ábyrgðartrygging bænda
Ábyrgðartrygging bænda er mikilvæg fyrir bændur sem vernd gegn þeim tjónum sem þeir eða búfé þeirra valda á eignum annarra eða fólki.
Tryggingin tekur til skaðabótaábyrgðar sem fellur á bændur eða heimilisfólk og starfsmenn hans valdi þeir þriðja aðila tjóni. Bætur greiðast vegna slysa á fólki og tjóns á munum og þar er m.a. átt við fasteignir, bifreiðar og dýr.
Vátryggingin bætir:
- Beint líkams- eða munatjón þriðja manns vegna skaðabótaábyrgðar vátryggðs sem fellur á hann samkvæmt íslenskum lögum vegna starfsemi þeirrar sem getið er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun. Með munum er átt við fasteign og lausafé, þ.m.t. dýr. Vátryggingin bætir tjón að því leyti sem tjónþoli á ekki að bera tjónið sjálfur vegna meðsakar eða meðábyrgðar.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón innan samninga, þ.e. tjón sem vátryggður ber ábyrgð á vegna vanefnda á samningi.
- Tjón vegna skemmda á munum eða glötunar muna sem:
- Vátryggður á einn eða með öðrum.
- Vátryggður hefur að láni, á leigu, til geymslu, sölu, flutnings eða eru af öðrum ástæðum í vörslu hans, þar á meðal muna sem vátryggður hefur tekið í heimildarleysi.
- Vátryggður tekur að sér að gera við, hreinsa, setja upp eða vinna við með öðrum hætti, ef tjónið verður af verkinu eða við verkið.
- Tjón sem leiðir af skaðabótaábyrgð er fellur á vátryggðan sem eiganda eða notanda skráningarskylds ökutækis, loftfars, skips eða báts.
- Tjón á munum stafi það af eldsvoða, vatni vegna slökkvistarfs, reyk, sóti eða sprengingu.
- Sektir, málskostnað eða önnur útgjöld í sambandi við refsimál.
- Tjón sem verður sökum mengunar lofts, jarðar, gróðurs, sjávar eða vatns. Félagið bætir þó þess háttar tjón ef það verður rakið til eins skyndilegs atburðar.
- Tjón sem rekja má til asbests eða efnis sem inniheldur asbest að einhverju leyti.
- Endurkröfu frá almannatryggingum.
- Munatjón sem stafar af sprengingum, uppgreftri, aur- eða skriðuhlaupum, jarðsigi eða af því að stífla eða flóðgarður brestur.
- Tjón vegna byggingarframkvæmda á fasteign sem vátryggður er eigandi að.
- Tap eða tjón sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta af:
- Áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.
- Umsjón með eða ráðgjöf um áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra.
- Eftirliti, viðurkenningu, ákvörðun, staðfestingu eða áritun um aðstæður þar sem áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra skipta máli (þ.m.t. en þó ekki takmarkað við störf framkvæmdastjóra, stjórnarmanna og endur-skoðenda að verkefnum sínum).
- Undanþága þessi á við um allar tímaskráningar.
Með “tímaskráningu” er átt við tilgreiningu tíma sem byggist á almanakskerfi þegar tilgreiningin verkar sem upplýsingar, kóti, merki eða með hvers konar öðrum hætti í búnaði, kerfi eða samblandi þessa hvoru tveggja.
Með “búnaði” er átt við hvers konar vélar, tæki, vörur og aðra áþreifanlega hluti eða safn hluta, hvort sem um er að ræða fasteign eða lausafé, þ.m.t. en þó ekki takmarkað við vélbúnað tölva, hugbúnað eða samþætt rafeindakerfi (þ.m.t. örgjörvar og kísilflögur).
Með “kerfi” er átt við hvers konar upplýsingar, fyrirmæli eða safn þeirra og hvers konar miðla fyrir upplýsingar og fyrirmæli í tölvutæku formi, á pappír eða í formi geisla, bylgna, eðlisfræðilegra áhrifa, efnaferla eða á öðru óáþreifanlegu eða áþreifanlegu formi.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
