Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar
Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar er mikilvæg öllum rekstri og alltaf ráðlögð þeim sem stunda hverskonar fyrirtækjarekstur.
Tryggingin tekur til skaðabótaábyrgðar sem kann að falla á fyrirtæki vegna starfsemi þess eða ef starfsmenn valda þriðja aðila tjóni og er skaðabótaskylt samkvæmt íslenskum lögum. Bætur greiðast fyrir tjóns á munum og/eða vegna slysa á fólki.
Vátryggingin bætir:
- Beint líkams- eða munatjón þriðja manns vegna skaðabótaábyrgðar vátryggðs sem fellur á hann samkvæmt íslenskum lögum:
- Vegna starfsemi þeirrar sem getið er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
- Sem eiganda eða notanda húss eða fasteignar sem notuð er við tilgreinda starfsemi.
- Með munum er átt við fasteign og lausafé, þ.m.t. dýr. Vátryggingin bætir tjón að því leyti sem tjónþoli á ekki að bera tjónið sjálfur vegna meðsakar eða meðábyrgðar.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón innan samninga, þ.e. tjón sem vátryggður ber ábyrgð á vegna vanefnda á samningi.
- Tjón vegna skemmda á munum eða glötunar muna sem:
- Vátryggður á einn eða með öðrum.
- Vátryggður hefur að láni, á leigu, til geymslu, sölu, flutnings eða eru af öðrum ástæðum í vörslu hans, þar á meðal muna sem vátryggður hefur tekið í heimildarleysi.
- Vátryggður tekur að sér að gera við, hreinsa, setja upp eða vinna við með öðrum hætti, ef tjónið verður af verkinu eða við verkið.
- Verður af völdum eldsvoða.
- Tjón sem rekja má til asbests eða efnis sem inniheldur asbest að einhverju leyti.
- Tjón sem leiðir af skaðabótaábyrgð er fellur á vátryggðan sem eiganda eða notanda skráningar-skylds ökutækis, loftfars, skips, báts eða annars farartækis.
- Tjón vegna byggingaframkvæmda á fasteign sem vátryggður á eða notar.
- Tjón sem hlýst af því að vátryggður vinnur við sprengingar, uppgröft, jarðboranir eða aðrar framkvæmdir í jörðu, svo sem að reka niður eða taka upp staura, stálþil o.þ.h., niðurrif mannvirkja, uppfyllingu eða aðrar breytingar á landi, breytingar á grunnvatni, rennsli vatns eða aðrar framkvæmdir varðandi grunnvatn, stöðuvatn eða straumvatn.
- Tjón sem leiðir af skaðsemisábyrgð er fellur á vátryggðan.
- Tjón sem rakið verður til mengunar lofts, jarðar, gróðurs, vatns eða sjávar. Félagið greiðir þó bætur vegna slíks tjóns ef það verður rakið til eins skyndilegs atburðar.
- Endurkröfu frá almannatryggingum.
- Sektir eða önnur refsiviðurlög.
- Tjón sem beint eða óbeint verður af völdum hryðjuverka vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. vegna sýkla og veira, eða þegar afleiðingar slyss verða meiri vegna framangreindra atriða.
- Tap eða tjón sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta af:
- Áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.
- Umsjón með eða ráðgjöf um áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra.
- Eftirliti, viðurkenningu, ákvörðun, staðfestingu eða áritun um aðstæður þar sem áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra skipta máli (þ.m.t. en þó ekki takmarkað við störf framkvæmdastjóra, stjórnarmanna og endurskoðenda að verkefnum sínum).
- Undanþága þessi á við um allar tímaskráningar.
- Með “tímaskráningu” er átt við tilgreiningu tíma sem byggist á almanakskerfi þegar tilgreiningin verkar sem upplýsingar, kóti, merki eða með hvers konar öðrum hætti í búnaði, kerfi eða samblandi þessa hvoru tveggja.
Með “búnaði” er átt við hvers konar vélar, tæki, vörur og aðra áþreifanlega hluti eða safn hluta, hvort sem um er að ræða fasteign eða lausafé, þ.m.t. en þó ekki takmarkað við vélbúnað tölva, hugbúnað eða samþætt rafeindakerfi (þ.m.t. örgjörvar og kísilflögur).
Með “kerfi” er átt við hvers konar upplýsingar, fyrirmæli eða safn þeirra og hvers konar miðla fyrir upplýsingar og fyrirmæli í tölvutæku formi, á pappír eða í formi geisla, bylgna, eðlisfræðilegra áhrifa, efnaferla eða á öðru óáþreifanlegu eða áþreifanlegu formi.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
