Bótasvið

Farmtrygging bætir tjón á vöru í flutningi með viðurkenndum flutningsaðila. Almenna reglan er sú að vátrygging hefst þegar flutningsaðili hefur tekið við vöru og lýkur þegar hann hefur komið vörunni á áfangastað. Söluskilmálar og aðrir þættir hafa þó áhrif varðandi farmtryggingu og á eigandi vöru að kynna sér slíkt áður en farmtrygging er tekin, s.s. hvenær ábyrgð hans á vörunni hefst og/eða lýkur. Farmtrygging er skaðatrygging þannig að ekki er bætt afleitt tjón.

Mismunandi bótasvið eftir skilmálum

Bótasvið farmtryggingar er mismunandi eftir því hvaða skilmáli gildir. Algengustu skilmálar eru A, B og C skilmálar í farmtryggingum:

C skilmáli hefur oft verið nefndur "þröngur" skilmáli sem bætir hluti eins og sameiginlegt sjótjón, björgunarkostnað og altjóns á vöru þegar skip sekkur eða því hvolfir.

B skilmáli er oft nefndur "takmarkaður" skilmáli sem til viðbótar bætir tjón vegna fyrirborðsskolunar og altjón á einstaka einingum vegna upp- og útskipunar.

A skilmáli er víðtækur skilmáli og bætir hann hlutatjón á vöru, s.s. þjófnað og skemmdir vegna óhappatilvika í flutningi. Eins og komið hefur fram eru afleidd tjón aldrei bætt með farmtryggingu.