Bruni
Hagnýtar upplýsingar um viðbrögð fyrir þá sem hafa orðið fyrir tjóni sökum elds.
Notkun slökkvitækja
Þegar slökkvitæki eru notuð til að slökkva eld er mikilvægt að beina
innihaldi þess að rótum eldsins. Aðeins tekur nokkrar sekúndur að tæma
úr slökkvitæki þannig að allan undirbúning þarf að vanda vel. Aldrei
skal nota vatn til að slökkva rafmagnseld eða eld sem kviknar í feiti.
Ekki skal heldur reyna að flytja tæki eða potta sem eldur er laus í.
Eldur getur dreifst við það og valdið skaða á mönnum og munum. Ef eldur
er laus í feitarpotti, er best að kæfa eldinn með því að setja lokið á
pottinn eða breiða eldvarnarteppi yfir hann.
Ef eldur er orðinn mikill er best að forða sér og öðrum út. Muna skal eftir því að reykur er oftast hættulegri en eldur. Reykur og hiti leita upp á við og því eru svæði við gólfið lengur reyklaus. Ef það reynist nauðsynlegt að vaða reyk er æskilegt ef hægt er að halda rökum klút fyrir vitunum.
Neyðarnúmer lögreglu og slökkviliðs er 112.
Tilkynna tjónið
Þegar brunatjón verður og búið er að slökkva eldinn, skal hafa samband við VÍS og tilkynna tjónið. Þá koma starfsmenn tjónadeildar á staðinn og meta ásamt tjónþola það tjón sem hann sem eigandi húss og/eða innbús hefur orðið fyrir.
Þjónustuver VÍS veitir frekari upplýsingar. Enn fremur er hægt að fá leiðbeiningar með því að senda tölvupóst á netfangið <upplysingar@vis.is>. Sé hins vegar brýn þörf á aðstoð, er tjónavakt hjá eignatryggingum VÍS allan sólarhringinn í síma 560-5070.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
