Ábyrgðartjón
Hagnýtar upplýsingar um viðbrögð fyrir þá sem hafa orðið fyrir ábyrgðartjóni.
Vátryggingartaka ber að tilkynna fram komna kröfu á þar til
gerðri <tjónstilkynningu> um leið og
hún berst honum. Mikilvægt er að vanda útfyllingu eyðublaðsins.
Ábyrgðartryggingar eru þess eðlis að félagið hefur náið samband við
vátryggingartaka, s.s. varðandi öflun upplýsinga o.fl.
VÍS kemur fram fyrir hönd þeirra sem hafa ábyrgðartryggingu hjá félaginu gagnvart þeim er verða fyrir tjóni sem hinn vátryggði hefur valdið af gáleysi. Hinn vátryggði verður að tilkynna um tjónið til félagsins eins fljótt og unnt er og eftir það mun félagið annast málið fyrir hans hönd, meta bótaskylduna og, eftir atvikum, gera upp tjónið.
Þegar um líkamstjón er að ræða er hinum slasaða ráðlagt að leita sér aðstoðar lögmanns þar sem um verulega hagsmuni getur verið að ræða og vegna þess að reglur skaðabótalaga geta verið flóknar.
Mikilvægt að vanda skýrslugerð
Þegar um slys er að ræða er mjög mikilvægt að vanda sérstaklega til skýrslugerðar. Svara ber af kostgæfni öllum þeim spurningum sem á eyðublaðinu eru. Nákvæm tjónstilkynning leiðir til þess að mál er afgreitt með skjótari hætti en ella. Það er hinn vátryggði sem fyllir út tjónstilkynningu en það þarf ekki endilega að vera vátryggingartaki. Ef barn vátryggingartaka slasast og fellur undir vátryggingu hans er nægilegt að vátryggingartaki sendi inn tilkynningu.
Ábyrgðartrygging vátryggir gegn skaðabótaábyrgð sem vátryggður kann að baka sér gagnvart þriðja manni vegna atvika sem hafa tjón í för með sér og hann ber ábyrgð á. Um bótaskyldu fer að mestu samkvæmt íslenskum skaðabótarétti að því undanskildu að nokkrar takmarkanir eru í skilmálum vátryggingarinnar.
Ábyrgðartrygging einstaklings er í <F plús> fjölskyldutryggingum VÍS en einnig er hægt að kaupa hana sér. Margs konar aðrar ábyrgðartryggingar eru í boði hjá VÍS og má sem dæmi nefna ábyrgðartryggingu atvinnurekstrar, ábyrgðartryggingu bænda og útgerðamanna.
Venjulegar ábyrgðartryggingar taka að jafnaði ekki til skaðabóta innan samninga, t.d. þegar tjón verður á hlut sem vátryggingartaki er að gera við, heldur taka þær einungis til skaðabóta utan samninga. Bótauppgjör samkvæmt ábyrgðartryggingum fer eftir skaðabótalögum nr. 50/1993.
Ábyrgðartjón eru almennt þess eðlis að tíma tekur að ákvarða bótaskyldu. Stafar það af því að oft þarf að afla gagna frá utanaðkomandi aðila, s.s. lögreglu eða Vinnueftirliti ríkisins. Stundum þarf einnig að kanna vettvang og taka ljósmyndir.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
