Hleð spilara!

Stöðumat fyrirtækja

Stöðumat fyrirtækja gefur fyrirtækjum yfirsýn yfir hvar þau standa í öryggis- og forvarnarmálum.


Stöðumat fyrirtækja er nýr þáttur í forvarnarþjónstu VÍS. Því er ætlað að gefa fyrirtækjum yfirsýn yfir hvar þau standa í öryggis- og forvarnarmálum. Sérstakur gátlisti hefur verið útbúinn fyrir stöðumatið og fer það þannig fram að fyrirtækjafulltrúi VÍS mætir í heimsókn og fer yfir gátlistann í samvinnu við atvinnurekandann. Farið er í vettvangskoðun um vinnustaðinn og mat lagt á ákveðna forvarnarþætti sem spurt er um í gátlistanum.Eftir heimsóknina fær fyrirtækið yfirlit um stöðu þess í öryggis- og forvarnarmálum og bent á ef tækifæri eru til úrbóta. Fyrirtækinu er síðan gefin ákveðin forvarnareinnkun sem unnin er úr niðurstöðum gátlistans.

VÍS vill með þessu sýna frumkvæði og aðstoða atvinnurekendur við að efla forvarnir og öryggismál innan fyrirtækja þeirra. Meginmarkmið forvarnarstarfsins er að efla þekkingu og nýja hugsun hjá stjórnendum og starfsmönnum um forvarnarmál. Það er sameiginlegt markmið og ávinningur fyrir alla að koma í veg fyrir slys og tjón.

Fyrirtæki í viðskiptum hjá VÍS taka þessu frumkvæði okkar í forvarnarmálum fagnandi og viðbrögð þeirra sem hafa fengið forvarnarheimsókn hefur leitt til aukinna forvarnaraðgerða á þeirra vinnustað. Við viljum þakka þeim fyrirtækjum kærlega fyrir frábærar mótttökur og hvetjum þau um leið að halda áfram á sömu braut við að efla forvarnir í fyrirtækinu.