Brunavarnir

Öflugar brunavarnir og vel staðsett slökkvitæki eru mikilvægur þáttur í starfsemi fyrirtækja.


Öflugar brunavarnir eru mikilvægur þáttur í starfsemi fyrirtækja. Mörg dæmi eru um að fyrirtæki hafi aldrei borið sitt barr eftir eldsvoða. Ekki þarf mikinn eldsvoða til þess að rekstur stöðvist og reynslan sýnir að rekstrarstöðvun getur haft afdrifaríkar afleiðingar og valdið meira tjóni en eldsvoðinn sem slíkur.

Mikilvægt er að almennar brunavarnir s.s. reykskynjarar, slökkvitæki, brunaslöngur og brunaviðvörunarkerfi séu til staðar í fyrirtækjum og að farið sé eftir lögum og reglum varðandi brunahólfun.

Slökkvibúnaður

Hafið slökkvitæki ávallt vel staðsett. Hugið að því að þau séu í lagi og að starfsmenn kunni á þau. Forðist að láta drasl og annan óþarfa safnast fyrir innan sem utan dyra.

Vatnsúðunarkerfi (sprinkler) hefur sannað sig sem ein besta brunavörnin. Vatnsúðunarkerfi slökkva sjaldnast eld en þau halda honum í skefjum þar til slökkvilið kemur á staðinn.

Brunaviðvörunarkerfi ætti að vera í húsnæðinu og tengt þjónustuaðila þar sem það styttir verulega þann tíma sem tekur að koma boðum til slökkviliðs.

Brunahólfun

Í brunavörnum skiptir góð brunahólfun öllu máli. Stærstu brunatjón á síðustu 10 - 15 árum má rekja til lélegrar brunahólfunar þar sem útbreiðsla elds verður svo ör að slökkvilið ræður ekki við eldinn. Til þess að slökkvilið eigi auðveldara með að bjarga verðmætum þarf brunahólfun að vera í lagi en þar skortir oft upp á.

Brunahólfun skal vera í samræmi við lög og reglugerðir. Ekki má rjúfa brunahólfun nema í samráði við hönnuð byggingar eða viðkomandi eldvarnareftirlit. Gæta skal að þéttingum meðfram lögnum. Eldvarnarhurðir eiga að vera viðurkenndar og skal vera einfalt og fljótlegt að loka þeim. Þær skulu jafnframt vera lokaðar þegar engin starfsemi er í húsinu eins og t.d. að næturlagi. Einnig er gott að hafa reyklosunarbúnað í þaki en hann getur skipt sköpum þegar losa þarf hita út úr húsinu.

Lög, reglugerðir og vátryggingar

Til þess að fyrirbyggja tjón og reyna að halda þeim í lágmarki er mjög mikilvægt að fara í einu og öllu eftir þeim lögum og reglugerðum sem eru í gildi á hverjum tíma. Þó að mörg fyrirtæki séu vel vátryggð þá er samkeppni það mikil að stöðvun í styttri eða lengri tíma getur haft veruleg áhrif á afkomuna. Lög um brunavarnir nr. 75/2000

Rafmagn

Rafmagn skal yfirfara með reglulegu millibili í samráði við rafverktaka hússins og gæta að tengingum í töflum. Geymið öll eldfim efni eins og gas sem næst útidyrum og setjið merkingar þannig að slökkvilið sjái efnin. Forðist að safna saman afgöngum af málningu og öðrum eldfimum vökvum. Sýnið aðgæslu þegar unnið er með logsuðutækjum innan dyra eða með skurðarverkfærum eins og slípirokkum. Hafið ávallt tvö slökkvitæki til taks þegar slík störf eru unnin og einhvern til að fylgjast með.