Hleð spilara!

Áherslur VÍS í forvörnum fyrirtækja

Forvarnarstefna VÍS

Allir starfsmenn VÍS eru forvarnarfulltrúar í þjónustu sinni við viðskiptavini. Forvarnir eru hluti af fyrirtækjamenningu VÍS og mikilvægur hlekkur í starfsemi félagsins. Forvarnir eru sýnilegur hluti af starfseminni og hafa þann tilgang að fækka slysum og tjónum meðal viðskiptavina og í samfélaginu í heild.

Forvarnir Fyrirtækja

Mikilvægt er að fyrirtæki hugi vel að forvörnum og forsenda góðs árangurs er skýr stefna og stuðningur yfirstjórnenda og virk þátttaka stjórnenda og starfsmanna. Mikil áhersla er lögð á að fyrirtæki framkvæmi lögbundið áhættumat á vinnustaðnum og að beina sjónum að brunavörnum, innbrotsvörnum og umgengni. Öflugar forvarnir stuðla að góðri ímynd, auka rekstraröryggi fyrirtækisins og öryggi starfsmanna. Hægt er að koma í veg fyrir öll slys og tjón með öflugum forvörnum og eru rétt vinnubrögð og öruggt vinnuumhverfi eru lykillinn að því.

VÍS er í samstarfi við Vinnueftirlit ríkisins, Siglingastofnun, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Öryggismiðstöð Íslands um að miðla fræðsluefni um forvarnir á vinnustöðum til fyrirtækja.