Lögbundið áhættumat - Skyldur atvinnurekanda
Atvinnurekendur bera ábyrgð á að framkvæmt sé lögbundið áhættumat fyrir alla starfsemi fyrirtækisins.
Samkvæmt vinnuverndarlögunum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, ber atvinnurekandi ábyrgð á að láta framkvæma áhættumat fyrir alla starfsemi fyrirtækisins. Þá skal hann einnig sjá til þess að gert verði áhættumat starfa og áætlun um vinnuverndarstarf og forvarnir á vinnustaðnum. Sömuleiðis er atvinnurekandi ábyrgur fyrir því að tilnefndur verði öryggisvörður og öryggistrúnaðarmaður sem halda utan um öryggismál fyrirtækisins.
Vinnueftirlitið hefur þróað sex skrefa leið til að framkvæma áhættumat á vinnustöðum sem styðst við vinnuumhverfisvísa. Þeir eru notaðir sem gátlistar og hjálpa til við að finna hættur í vinnuumhverfinu. Vinnuumhverfisvísarnir eru til fyrir 27 starfsgreinar og einnig nokkrir sértækir og eru þeir á heimasíðu Vinnueftirlitsins.
Á heimasíðu Vinnueftirlitsins má finna eftirfarandi eyðublöð til að gera áhættumat með vinnuumhverfisvísunum:
Sömuleiðis eru þar dæmi og leiðbeiningar um útfyllingu áhættumats.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
