Stærri útgerðir
Útgerðarfyrirtæki hafa fjölbreyttar þarfir á sviði vátrygginga allt eftir umfangi þeirra og stærð. Á þessu vefsvæði má finna þær tryggingar sem ráðlagðar eru fyrir starfsemi útgerða.
Skipta má æskilegum tryggingum í þrjá flokka:
- Lögboðnar tryggingar - Þær tryggingar sem fyrirtækinu ber að hafa samkvæmt lögum
- Grunnvernd - Þær tryggingar sem við hjá VÍS mælum með fyrir fyrirtækið sem grunnvernd
- Viðbótarvernd - Þær tryggingar sem við mælum með fyrir fyriræki sem sækjast eftir hámarks vernd
Slysatrygging sjómanna skv. siglinga- og skaðabótalögum
Skylt er að tryggja alla sjómenn í vinnutíma á stærri bátum og skipum samkvæmt kjarasamningum.
Slysatrygging sjómanna skv. siglingalögum
Skylt er að tryggja alla sjómenn í vinnutíma á minni fiskibátum samkvæmt kjarasamningum LSS.
Brunatrygging húseigna
Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging og bætir hún tjón vegna eldsvoða.
Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækja
Öllum bifreiðaeigendum er skylt að vera með í gildi lögboðna ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda.
Húftrygging fyrir íslensk fiskiskip stærri en 100 brl.
Tryggingin er ætluð útgerðum þiljaðra fiskiskipa yfir 100,49 rúmlestir.
Húftrygging fyrir íslensk fiskiskip minni en 100 brl.
Tryggingin er ætluð útgerðum þiljaðra fiskiskipa undir 100,49 rúmlestir.
Lausafjártrygging
Öll fyrirtæki ættu að huga að því að tryggja sína lausafjármuni og er lausafjártrygging sniðin að þeirri þörf.
Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar
Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar er mikilvæg öllum rekstri og alltaf ráðlögð þeim sem stunda hverskonar fyrirtækjarekstur.
Kaskó
Kaskótrygging hentar öllum eigendum nýlegra bíla og bætir hún margs konar tjón á bifreiðinni.
Sóttdauðabætur
Útgerðarmenn hafa þnn kost að tryggja skipverja með líftryggingu ef veikindi leiða til andláts.
Eigur skipverja
Tryggir eigur skipverja um borð í vátryggðu skipi.
Aflatrygging
Aflatrygging er æskileg öllum útgerðum og tekur til tjóna á veiddum fiski.
Aflatrygging - frystur afli
Tryggingin er æskileg öllum útgerðum með skip yfir 100 brl. og tekur til tjóna á veiddum fiski.
Veiðarfæratrygging
Veiðarfæratrygging er æskileg öllum útgerðum og tekur til tjóna á veiðarfærunum sjálfum um borð í skipinu.
Nótatrygging
Nótatrygging hentar öllum skipum útgerða og tekur til tjóna á nótunum sjálfum um borð í skipinu eða í landi.
Hagsmunatrygging fyrir íslensk fiskiskip
Hagsmunatrygging er ætluð útgerðum skipa yfir 100 brl. og tekur til hagsmuna vegna altjóns á skipi.
Vinnuvélatrygging
Vinnuvélatrygging hentar öllum eigendum vinnuvéla og veitir þeim vernd gegn tjónum á vélunum.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
