Hleð spilara!

Fiskibátar

Eigendur fiskibáta eru mismunandi eins og þeir eru margir og tryggingaþörfin því mjög fjölbreytt. Á þessu vefsvæði má finna þær tryggingar sem ráðlagðar eru fyrir eigendur fiskibáta.


Skipta má æskilegum tryggingum í þrjá flokka:
  • Lögboðnar tryggingar - Þær tryggingar sem fyrirtækinu ber að hafa samkvæmt lögum
  • Grunnvernd - Þær tryggingar sem við hjá VÍS mælum með fyrir fyrirtækið sem grunnvernd
  • Viðbótarvernd - Þær tryggingar sem við mælum með fyrir fyriræki sem sækjast eftir hámarks vernd

Slysatrygging sjómanna skv. siglingalögum

Skylt er að tryggja alla sjómenn í vinnutíma á minni fiskibátum samkvæmt kjarasamningum LSS.

Slysatrygging sjómanna skv. siglinga- og skaðabótalögum

Skylt er að tryggja alla sjómenn í vinnutíma á stærri bátum og skipum samkvæmt kjarasamningum.


Húftrygging smábáta

Húftrygging smábáta tryggir báta undir 10 rúmlestum gegn tjónum á bátnum sjálfum ásamt því að vera ábyrgðartrygging.

Lausafjártrygging

Öll fyrirtæki ættu að huga að því að tryggja sína lausafjármuni og er lausafjártrygging sniðin að þeirri þörf.

Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar

Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar er mikilvæg öllum rekstri og alltaf ráðlögð þeim sem stunda hverskonar fyrirtækjarekstur.


Sóttdauðabætur

Útgerðarmenn hafa þnn kost að tryggja skipverja með líftryggingu ef veikindi leiða til andláts.

Eigur skipverja

Tryggir eigur skipverja um borð í vátryggðu skipi.

Aflatrygging

Aflatrygging er æskileg öllum útgerðum og tekur til tjóna á veiddum fiski.

Aflatrygging - frystur afli

Tryggingin er æskileg öllum útgerðum með skip yfir 100 brl. og tekur til tjóna á veiddum fiski.

Veiðarfæratrygging

Veiðarfæratrygging er æskileg öllum útgerðum og tekur til tjóna á veiðarfærunum sjálfum um borð í skipinu.

Nótatrygging

Nótatrygging hentar öllum skipum útgerða og tekur til tjóna á nótunum sjálfum um borð í skipinu eða í landi.