Hvalaskoðun

Hvalaskoðunarfyrirtæki hafa fjölbreyttar þarfir á sviði vátrygginga allt eftir umfangi þeirra og stærð. Á þessu vefsvæði má finna þær tryggingar sem ráðlagðar eru fyrir starfsemi fyrirtækja sem bjóða hvalaskoðanir.


Skipta má æskilegum tryggingum í þrjá flokka:
  • Lögboðnar tryggingar - Þær tryggingar sem fyrirtækinu ber að hafa samkvæmt lögum
  • Grunnvernd - Þær tryggingar sem við hjá VÍS mælum með fyrir fyrirtækið sem grunnvernd
  • Viðbótarvernd - Þær tryggingar sem við mælum með fyrir fyriræki sem sækjast eftir hámarks vernd
Samkvæmt íslenskum lögum er skylt að brunatryggja allar húseignir og ábyrgðartryggja allar bifreiðar. Einnig eru fjölmörgum starfstéttum skylt að tryggja sig í starfi. Á þessari vefslóð má finna þær lögboðnu tryggingar sem fyrirtækjaráðgjafar telja henta þinni starfsemi.

Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækja

Öllum bifreiðaeigendum er skylt að vera með í gildi lögboðna ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda.

Brunatrygging húseigna

Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging og bætir hún tjón vegna eldsvoða.

Lögboðin ábyrgðartrygging farsala og flutningsaðila

Er fyrir öll íslensk skip sem flytja farþega í atvinnuskyni, á sjó, ám eða vötnum án tillits til stærðar

Atvinnugreinar eru fjölmargar og rekstur fyrirtækja af ýmsum toga. Með grunnvernd er átt við þær tryggingar sem við ráðleggjum öllum þeim sem stunda hverskonar atvinnurekstur.

Slysatrygging launþega

Tryggingin er fyrir alla launþega í stéttarfélögum og samkvæmt kjarasamningum ber vinnuveitanda að slysatryggja starfsmenn sína.

Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar

Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar er mikilvæg öllum rekstri og alltaf ráðlögð þeim sem stunda hverskonar fyrirtækjarekstur.

Lausafjártrygging

Öll fyrirtæki ættu að huga að því að tryggja sína lausafjármuni og er lausafjártrygging sniðin að þeirri þörf.

Kaskó

Kaskótrygging hentar öllum eigendum nýlegra bíla og bætir hún margs konar tjón á bifreiðinni.

Atvinnugreinar eru fjölmargar og rekstur fyrirtækja af ýmsum toga. Með grunnvernd er átt við þær tryggingar sem við ráðleggjum öllum þeim sem stunda hverskonar atvinnurekstur.

Slysatrygging

Tryggingin er mikilvæg þeim sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri og fyrirtækjum sem vilja tryggja stjórnendum og lykilstarfsmönnum tekjuöryggi ef slys ber að höndum.

Sjúkra- og slysatrygging

Tryggingin er mikilvæg þeim sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri og fyrirtækjum sem vilja tryggja stjórnendum og lykilstarfsmönnum tekjuöryggi ef sjúkdóma eða slys ber að höndum.

Líftrygging

Líftrygging er mikilvæg öllum þeim sem hafa fyrir einhverjum að sjá eða hafa tekið á sig fjárskuldbindingar. Þegar launatekjur fjölskyldunnar lækka skyndilega við óvænt fráfall, sitja makar og börn oft eftir með erfiðar og stundum óviðráðanlegar skuldbindingar.

Sjúkdómatrygging

Allir sem veikjast af alvarlegum sjúkdómi ætla sér að ná fullum bata. Þá er afar mikilvægt að þurfa ekki að glíma við fjárhagsáhyggjur. Lífís sjúkdómatrygging tryggir þér bætur ef þú greinist með tiltekinn alvarlegan sjúkdóm.

Húseigendatrygging

Húseigendatrygging er mikilvæg öllum húseigendum og veitir hún víðtæka vernd gegn tjónum á húseignum.

Glertrygging

Glertrygging tryggir allt gler sem búið er að koma fyrir á endanlegum stað.

Peningatrygging

Peningatrygging er ætluð þeim sem eru að flytja peninga á milli staða og veitir þeim vernd gegn ýmis konar tjónum.