Hleð spilara!

Ferðaskrifstofur

Verkefni ferðaskrifstofa eru mismunandi og tryggingaþörfin fjölbreytt en hér er að finna upplýsingar um þær tryggingar sem ráðlagðar eru fyrir starfsemi ferðaskrifstofa.


Skipta má æskilegum tryggingum í þrjá flokka:
  • Lögboðnar tryggingar - Þær tryggingar sem fyrirtækinu ber að hafa samkvæmt lögum
  • Grunnvernd - Þær tryggingar sem við hjá VÍS mælum með fyrir fyrirtækið sem grunnvernd
  • Viðbótarvernd - Þær tryggingar sem við mælum með fyrir fyriræki sem sækjast eftir hámarks vernd
Samkvæmt íslenskum lögum ber að brunatryggja allar húseignir og ábyrgðartryggja öll skráningarskyld ökutæki. Einnig er fjölmörgum starfstéttum skylt að tryggja sig í starfi. Á þessari vefslóð má finna þær lögboðnu tryggingar sem fyrirtækjaráðgjafar telja henta þinni starfsemi.

Brunatrygging húseigna

Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging og bætir hún tjón vegna eldsvoða.

Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækja

Öllum bifreiðaeigendum er skylt að vera með í gildi lögboðna ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda.

Með grunnvernd er átt við þær tryggingar sem við ráðleggjum alltaf ferðaskrifstofum. Grunnvernd hentar öllum þeim sem stunda hverskonar atvinnurekstur.

Slysatrygging launþega

Tryggingin er fyrir alla launþega í stéttarfélögum og samkvæmt kjarasamningum ber vinnuveitanda að slysatryggja starfsmenn sína.

Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar

Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar er mikilvæg öllum rekstri og alltaf ráðlögð þeim sem stunda hverskonar fyrirtækjarekstur.

Lausafjártrygging

Öll fyrirtæki ættu að huga að því að tryggja sína lausafjármuni og er lausafjártrygging sniðin að þeirri þörf.

Rekstrarstöðvunartrygging

Flestum fyrirtækjum í verslun, þjónustu eða framleiðsluiðnaði er mikilvægt að hafa í gildi rekstrarstöðvunartryggingu.

Kaskó

Kaskótrygging hentar öllum eigendum nýlegra bíla og bætir hún margs konar tjón á bifreiðinni.

Til að sérsníða vátryggingarnar alfarið að þörfum starfseminnar og bjóða réttu vátryggingalausnina höfum við sett hér undir þá viðbótarvernd sem ráðleggjum og teljum henta þínum rekstri.

Slysatrygging

Tryggingin er mikilvæg þeim sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri og fyrirtækjum sem vilja tryggja stjórnendum og lykilstarfsmönnum tekjuöryggi ef slys ber að höndum.

Sjúkra- og slysatrygging

Tryggingin er mikilvæg þeim sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri og fyrirtækjum sem vilja tryggja stjórnendum og lykilstarfsmönnum tekjuöryggi ef sjúkdóma eða slys ber að höndum.

Líftrygging

Líftrygging er mikilvæg öllum þeim sem hafa fyrir einhverjum að sjá eða hafa tekið á sig fjárskuldbindingar. Þegar launatekjur fjölskyldunnar lækka skyndilega við óvænt fráfall, sitja makar og börn oft eftir með erfiðar og stundum óviðráðanlegar skuldbindingar.

Sjúkdómatrygging

Allir sem veikjast af alvarlegum sjúkdómi ætla sér að ná fullum bata. Þá er afar mikilvægt að þurfa ekki að glíma við fjárhagsáhyggjur. Lífís sjúkdómatrygging tryggir þér bætur ef þú greinist með tiltekinn alvarlegan sjúkdóm.

Húseigendatrygging

Húseigendatrygging er mikilvæg öllum húseigendum og veitir hún víðtæka vernd gegn tjónum á húseignum.

Peningatrygging

Peningatrygging er ætluð þeim sem eru að flytja peninga á milli staða og veitir þeim vernd gegn ýmis konar tjónum.

Glertrygging

Glertrygging tryggir allt gler sem búið er að koma fyrir á endanlegum stað.