Hleð spilara!

H plús húsnæðistrygging

H plús sameinar húsnæðistryggingar einstaklinga í eina tryggingu. Grunnur tryggingarinnar er lögboðin brunatrygging en viðbótarbrunatrygging og húseigendatrygging eru valkvæðar.


Með Hplús er hægt að tryggja húseignina fyrir óvæntum óhöppum sem geta verið mjög kostnaðarsöm og valdið gríðarlegu óþægindum og raski á heimilinu.

Hplús samanstendur af eftirfarandi:

Lögboðin brunatrygging
•    Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging sem bætir tjón á fasteign vegna eldsvoða

Viðbótarbrunatrygging (valkvæð)
•    Húseigendur sem telja að brunabótamat húseignarinnar dugi ekki til endurbyggingar eftir tjón geta óskað eftir viðbótarbrunatryggingu.

Húseigendatrygging (valkvæð)
•    Tryggir húseignina fyrir tjónum á borð við vatnstjón innan veggja hússins, rúðubrot, hrun á innréttingum, brot á hreinlætistækjum, brot á keramikhelluborði, skemmdir vegna innbrots o.fl.

H plús bætir tjón sem verða á húseigninni sjálfri en F plús bætir tjón sem verður á innbúi heimilisins. 
Forvarnir eru mikilvægar til að fyrirbyggja tjón á húseignum. Lesa má allt um þær hér eða á Forvarnaheimilinu. Gátlista um hvernig má fyrirbyggja tjón á heimilum má nálgast hér.