Hleð spilara!

Lífís söfnunarlíftrygging - líftrygging og sparnaður

Söfnunarlíftrygging samanstendur af líftryggingu ásamt söfnun sem er góð leið fyrir þá sem vilja sýna fyrirhyggju og hefja langtímasparnað.


Í upphafi söfnunar er valin líftryggingarfjárhæð sem helst út söfnunartímabilið. Kostnaður vegna líftryggingarinnar fer lækkandi eftir því sem söfnun eykst og fellur niður þegar söfnun verður hærri en líftryggingarfjárhæð. Ef tryggingartaki fellur frá á samningstímanum fá hans nánustu greitt út það sem hærra er, líftryggingarfjárhæð eða söfnun.

Með söfnunarlíftryggingu býðst iðgjaldatrygging sem tryggir áframhaldandi söfnun þó að starfsorka skerðist verulega. Þannig raskast ekki söfnunarmarkmið þótt sjúkdómur eða slys leiði til tekjumissis. Iðgjaldafrelsi tryggir í þeim tilvikum að félagið greiðir áfram iðgjald vegna söfnunar og líftryggingar.