Hleð spilara!

Sjóðir og gengi

Upplýsingar og tenglar á innlenda og erlenda sjóði.


Með því að fjárfesta í verðbréfasjóði er hægt að njóta áhættudreifingar og betri ávöxtunar án þess að þurfa að setja saman eigið verðbréfasafn. Boðið er upp á verðbréfasjóði sem fjárfesta í innlendum og erlendum verðbréfum. Með réttu samvali þessara sjóða er hægt að ná fram fjárfestingarstefnu sem hentar hverjum viðskiptavini með tilliti til tímalengdar fjárfestingarinnar, ávöxtunar og áhættu.

Hafa þarf í huga að fortíðarávöxtun verðbréfasjóða segir ekki til um ávöxtun þeirra í framtíðinni. Í söfnunarlíftryggingu ber sá sem tekur trygginguna sjálfur áhættuna af fjárfestingunni og því er mjög þýðingarmikið að varfærni sé höfð að leiðarljósi við val á samsetningu verðbréfasjóða.

Fjárfestingakostirnir eru fjölbreyttir og áhugaverðir og hægt að velja á milli mismunandi innlendra og erlendra möguleika. Innlendir sjóðir eru undir stjórn Arion og í erlendum sjóðum er fjárfest í samstarfi við Fidelity Investments, sem er þekkt, alþjóðlegt fyrirtæki á sviði fjárfestinga og sjóðastjórnunar.

Starfsfólk Arion banka býr yfir áralangri reynslu af ávöxtun fjármuna. 

Val er um eftirfarandi sjóði:

Ávöxtun sjóða*

Leið/sjóður Ávöxtun í ÍSK
  1 mán. 3 mán. 6 mán. 9 mán. 1 ár 
Líflína 1 0,7% 7,1% 15,5% 9,7%  9,2%
Líflína 2 0,6%
6,0%
13,7% 9,6% 9,5%
Líflína 3 0,36%
2,50% 9,50% 8,28%  7,18%
Líflína 4 0,10% -1,80% 4,69% 6,61% 3,90%

*Viðmiðunardagur 31.3.2012