Hleð spilara!

Slysatrygging

Almenn slysatrygging er trygging sem felur í sér dánarbætur, bætur vegna varanlegrar örorku og dagpeninga vegna tímabundinnar örorku af völdum slyss.


Tryggingin bætir líkamstjón sem verða vegna slyss hvort sem það er í vinnu eða frítíma. Hægt er að kaupa slysatryggingu sem gildir eingöngu á vinnutíma. Við töku tryggingarinnar er valin upphæð bóta vegna varanlegrar örorku og dagpeninga vegna tímabundinnar óvinnufærni eftir þörfum hvers og eins. Einnig er hægt að bæta við dánarbótum.

Tryggingarþörf skal meta út frá eftirfarandi atriðum:

  • Hver er núverandi tryggingarvernd?
  • Hver eru réttindi hjá launagreiðenda?
  • Hvaða önnur bótaúrræði hefur þú, t.d. hjá sjúkrasjóðum lífeyrissjóða og Tryggingastofnun ríkisins?

Með orðinu slys er átt við skyndilegan, utanaðkomandi atburð sem veldur meiðslum á líkama þess sem tryggður er og gerist án vilja hans.

Vátryggingin gildir hvar sem er í heiminum og er beiðni forsenda tryggingatöku.