Hleð spilara!
Sjúkra- og slysatrygging
Sjúkra- og slysatrygging er viðbótartrygging við almenna slysatryggingu og getur falið í sér örorkubætur vegna varanlegrar örorku og dagpeninga vegna tímabundinnar örorku af völdum sjúkdóma.
Tryggingin greiðir bætur vegna sjúkdóma og slysa hvort heldur í vinnu eða frítíma. Við töku tryggingarinnar er valin upphæð bóta vegna varanlegrar örorku og dagpeninga vegna tímabundinnar óvinnufærni eftir þörfum hvers og eins. Einnig er hægt að bæta við dánarbótum eingöngu vegna slysa. Sjúkratryggingaþátturinn er eingöngu seldur sem viðbót við slysatryggingu.
Vátryggingin gildir hvar sem er í heiminum og er beiðni forsenda tryggingatöku.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
