Sjúkdómatrygging
Lífís sjúkdómatryggingu er ætlað að veita þér og fjölskyldu þinni fjárhagslegan stuðning ef þú greinist með einhvern þeirra alvarlegu sjúkdóma sem tryggingin tekur til.
Alvarleg veikindi gera sjaldan boð á undan sér. Oft getur tekið langan tíma að jafna sig og mikilvægt er að þurfa ekki að glíma við fjárhagsáhyggjur á meðan. Lífís sjúkdómatryggingu er ætlað að veita þér og fjölskyldu þinni fjárhagslegan stuðning ef þú greinist með einhvern þeirra alvarlegu sjúkdóma sem tryggingin tekur til eða ferð í aðgerð vegna þeirra. Tryggingarfjárhæðin er greidd út í einu lagi og eru bæturnar skattfrjálsar.
Mikilvægt er að vátryggingarfjárhæðin endurspegli þarfir þínar á hverjum tíma. Ef breytingar verða á fjárhagsaðstæðum eða fjölskyldustærð kallar það á endurskoðun líf- og sjúkdómatrygginga.
Börn á aldrinum 3 mánaða - 18 ára eru sjálfkrafa tryggð með tryggingu foreldris. Bótafjárhæðin nemur 50% af bótafjárhæð foreldra, að hámarki 10.400.000 kr.
Allir á aldrinum 18-69 ára geta sótt um sjúkdómatryggingu og gildir hún til 70 ára aldurs.
Bætur úr sjúkdómatryggingu eru framtalsskyldar en skattfrjálsar samkvæmt tekuskattslögum nr.90/2003 sem var samþykkt 14 apríl 2011 á Alþingi.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
