Frítíminn er mjög mikilvægur í lífi fólks, þá hvílir það sig eftir vinnu og sinnir áhugamálum sínum. Sem betur fer eru ekki allir steyptir í sama mótið og áhugamálin því fjölbreytt. Margir eiga sumarbústað og dvelja þar í frítíma sínum, aðrir hafa meiri áhuga á að ferðast hvort heldur sem er innanlands eða utan, hestamennska á hug fjölmargra, aðrir íþróttir annarra og svo mætti áfram telja.

Launþegar eiga samkvæmt kjarasamningi að njóta verndar úr slysatryggingu launþega vegna vinnuslysa, en fjölskyldutryggingar VÍS, F plús 4, F plús 3, F plús 2 og F plús 1 veita fjölskyldunni slysavernd í frítíma. Slysatryggingin í F plús er víðtækust og jafnframt veitir F plús tryggingavernd á ferðalögum erlendis og er því nauðsynleg öllum fyrir slíkar ferðir.

Óhöpp og slys gera ekki boð á undan sér. Tjón geta orðið hvenær sem er og enginn veit fyrirfram hvort hann verður fyrir tjóni eða ekki, en allt of margir hugsa: "það kemur ekkert fyrir mig".

Sumarbústaðaeigendur, eigendur húsvagna, hesta eða annarra verðmætra hluta, sem eru stór þáttur af frístundaiðju viðkomandi ættu að huga vel að þessum málum, því erfitt getur verið að endurnýja hlutina ef þeir glatast í tjóni og eru ótryggðir. Þar með er stoðunum jafnvel kippt undan aðaláhugamálinu.

VÍS býður fjölbreyttar tryggingar þar sem hægt er að tryggja ýmislegt sem tengist frístundaiðkun fólks.