Hleð spilara!
Líftrygging
Líftrygging er góður kostur fyrir þá sem vilja tryggja köttinn ef hann deyr af völdum sjúkdóms eða slyss.
Líftrygging greiðir bætur ef kötturinn slasast eða veikist svo illa að það þarf að aflífa hann að mati dýralæknis. Sé kötturinn aflífaður greiðast fullar bætur. Líftryggingarfjárhæð á að endurspegla markaðsvirði kattarins en það tekur mið af kaupverði hans og viðurkenndum verðleikum. Ef eiginleikar kattarins breytast er hægt að breyta fjárhæð líftryggingarinnar í samræmi við breytt verðmæti kattarins. Ekki er greitt umfram markaðsvirði kattarins.
Hægt er að líftryggja kött frá 8 vikna aldri og gildir tryggingin þangað til kötturinn verður 13 ára. Ekki er hægt að líftryggja kött eftir 6 ára aldur. Bótafjárhæðin lækkar um 10% á ári eftir að kötturinn verður 8 ára.
Engin eigin áhætta er í líftryggingu Kattaverndar VÍS.
Hægt er að kaupa líftryggingu eina og sér eða til viðbótar við aðrar tryggingar í Kattavernd VÍS.
Við töku líftryggingar þarf að skila inn eftirfarandi:

- 0 – 80 þús kr: beiðni
- 81+ þús kr: beiðni og dýralæknisvottorði ef kötturinn er 5 ára eða eldri
Hámarks bótafjárhæð fyrir blending er 20.000 kr
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?