Afnotamissistrygging
Afnotamissistrygging bætir tjón á köttum sem eru notaðir eða verða notaðir til ræktunar.
Bótafjárhæðir og aldursmörk eru þau sömu og í líftryggingu kattarins þar sem eingöngu er hægt að kaupa afnotamissistryggingu sem viðbót við líftryggingu Kattaverndar VÍS.
Hægt er að tryggja kött frá 8 vikna aldri og gildir tryggingin þangað til kötturinn verður 13 ára. Ekki er hægt að tryggja kött eftir 6 ára aldur. Bótafjárhæðin lækkar um 10% á ári eftir að kötturinn verður 8 ára.
Fyrir ræktunarketti eru greiddar hlutabætur vegna afnotamissis, þ.e. líftryggingafjárhæðin að frádregnum 20.000 kr. Fyrir hreinræktaða ketti þarf að liggja fyrir ættbókarnúmer frá KKÍ.
Sé greitt úr afnotamissistryggingu Kattaverndar fellur tryggingin úr gildi í kjölfarið. Engin eigin áhætta er í afnotamissistryggingu Kattarverndar VÍS.
Hægt er að kaupa afnotamissistryggingu til viðbótar við aðrar tryggingar í Kattavernd VÍS.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
