Umönnunartrygging greiðir fyrir vistun og gæslu hundsins á dýrahóteli eða sambærilegri stofnun ef tryggingartaki eða annar fjölskyldumeðlimur, með sama lögheimili og býr á sama stað, slasast svo alvarlega eða veikist að ekki er hægt að veita hundinum þá umönnun heima fyrir sem hann þarfnast.

Greiddar eru bætur vegna dvalar á dýrahóteli eða sambærilegri stofnun í allt að 60 daga á hverju tryggingartímabili. Hægt er að hafa umönnunartryggingu alla ævi hundsins.

Framvísa þarf læknisvottorði vegna veikinda eða slyss eiganda eða umsjónarmanns ásamt reikningi frá dýrahóteli.

Hægt er að kaupa umönnunartryggingu eina og sér eða til viðbótar við aðrar tryggingar í Hundavernd VÍS.

Við töku umönnartryggingar þarf að skila inn eftirfarandi:

  • Beiðni