Hleð spilara!
Sjúkrakostnaðartrygging
Sjúkrakostnaðartrygging færir hundum bestu meðhöndlun sem völ er á ef hundurinn veikist eða slasast. Tryggingin hentar öllum hundum, jafnt heimilishundum, ræktunarhundum sem vinnuhundum.
Sjúkrakostnaður vegna veikinda eða slysa nemur oft háum fjárhæðum. Tíðar heimsóknir til dýralæknis, lyfjakostnaður og einfaldar aðgerðir geta oltið á tugum og jafnvel hundruðum þúsunda króna.
Hægt er að tryggja hundinn frá 8 vikna aldri og getur tryggingin varað til æviloka hans. Bótafjárhæðin lækkar um 20% frá því ári sem hundurinn verður 7 ára og síðan um 20% árlega næstu 3 árin þar á eftir en helst svo óbreytt.
Eigin áhætta í hverju tjóni er tvíþætt. Annarsvegar föst fjárhæð og síðan 10% af lækniskostnaði umfram föstu fjárhæðina. Föst eigin áhættan gildir fyrir hvert 100 daga tímabil og hefst við fyrstu heimsókn til dýralæknis.
Dæmi:
Reikningur frá dýralækni 100.000 kr
Föst eigin áhætta* 10.000 kr
10% eigin áhætta 9.000 kr
* Föst eigin áhætta reiknast ekki aftur fyrr en eftir 100 daga
Hægt er að kaupa Sjúkrakostnaðartryggingu eina og sér eða til viðbótar við aðrar tryggingar í Hundavernd VÍS.
Við töku sjúkrakostnaðartryggingar þarf að skila inn eftirfarandi:
- Beiðni, dýralæknisvottorð ef hundurinn er 1 árs eða eldri

- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?