Hleð spilara!

Afnotamissistrygging

Afnotamissistrygging bætir ef hundur hefur til frambúðar misst sérstaka hæfileika sem hann bjó yfir.


Afnotamissistrygging er kjörin fyrir hunda sem eru notaðir samfellt við vinnu og/eða fyrir hunda sem eru notaðir eða munu verða notaðir til ræktunar. Ræktunarhundar skulu vera ættbókarfærðir hjá HRFÍ.

Bótafjárhæð og aldursmörk eru þau sömu og í líftryggingu hundsins þar sem eingöngu er hægt að kaupa afnotamissistryggingu sem viðbót við líftryggingu Hundaverndar VÍS.

Fullar bætur eru greiddar út ef um er að ræða vinnuhund, hjálparhund eða keppnishund en hlutabætur eru greiddar vegna ræktunarhunds. Greidd er út líftryggingarfjáhæðin sem er umfram 50.000 kr sem hlutabætur.

Missi hundur sérstaka eiginleika sem voru nauðsynlegir fyrir vinnu og/eða notkun hans skal það staðfest með vottorði dýralæknis og vitnisburði frá óháðum aðila sem er fær um að dæma hvort hundurinn hafi eiginleikann.