Hleð spilara!

Reiðhestatrygging

Reiðhestatrygging er samsett úr líf- og afnotamissistryggingu og er góður kostur fyrir þá sem vilja ódýrari tryggingu og ekki eins víðtæka og Góðhestatrygginguna.


Afnotamissistryggingin greiðir bætur ef fella þarf hestinn þar sem hann hefur verið úrskurðaður ónothæfur til reiðar eða vinnu í kjölfar sjúkdóms eða slyss. Geti hesturinn lifað áfram að mati dýralæknis og eigandi kýs að halda hestinum greiðast hlutabætur sem eru andvirði dánarbóta að frádregnum 100 þús kr. Skráningu er breytt í WorldFeng þar sem ekki má nota hestin í reið eða keppni.

Líftryggingin greiðir bætur ef hestur deyr eða slasast svo illa að það þurfi að fella hann tafarlaust að mati dýralæknis. Sé hestur felldur greiðast fullar bætur. Líftryggingarfjárhæð á að endurspegla markaðsvirði hestsins en það tekur mið af kaupverði hans og viðurkenndum verðleikum. Ef eiginleikar hestsins breytast er hægt að breyta fjárhæð líftryggingarinnar í samræmi við breytt verðmæti hestsins.

Bótafjárhæð líftryggingarinnar lækkar um 20% þegar hesturinn verður 19 ára og síðan um 20% af eftirstöðvum fjárhæðarinnar hverju sinni við endurnýjun eftir það.

Ákvæði um greiðslu bóta úr Reiðhestatryggingu eru takmarkaðri en í Góðhestatryggingu VÍS þar sem bætur miðast við tiltekna sjúkdóma og atvik sem talin eru upp í skilmálum.

Engin eigin áhætta er í Reiðhestatryggingu VÍS.

Við töku reiðhestatryggingar þarf að skila inn eftirfarandi, hverju þarf að skila inn hverju sinni fer eftir verðmæti hests:
  • 0 – 500 þús kr:  beiðni og hesturinn skoðaður af skoðunarmanni VÍS
  • 501 – 5 mkr:      beiðni og læknisvottorð
  • 3+ mkr:               beiðni, læknisvottorð og röntgen myndir

Mjög alvarleg slys geta og hafa orðið í tengslum við hestamennsku og því eru forvarnir mikilvægar. Kynntu þér allt um forvarnir í hestamennsku hér.

Góðhestatrygging, reiðhestatrygging og kynbótahryssutrygging innihalda allar líftryggingu. Auk þess má kaupa líftryggingu eina sér og er hún kölluð takmörkuð líftrygging. Líftryggingarnar í Hestavernd VÍS eru tvenns konar og felst mismunur þeirra í ólíku bótasviði. Líftryggingin í góðhestatryggingu er víðtækari en aðrar líftryggingar.

Líftryggingarnar eiga það sameiginlegt að greiddar eru bætur ef hesturinn deyr eða hann þarf að aflífa af völdum sjúkdóms eða slyss en þó ekki alltaf vegna sömu sjúkdóma eða slysa. Þá eru greiddar bætur ef hesturinn hverfur eða honum er stolið.

Hægt er að kaupa líftryggingu á folald og getur hrossið verið líftryggt til þess árs sem það verður 23 vetra. Vátryggingarfjárhæðin lækkar árlega um 20% frá því ári sem hesturinn verður 19 vetra.

Til þess að vátryggingarverndin sé sem best þarf líftryggingarfjárhæðin að endurspegla markaðsvirði hrossins á hverjum tíma. Ef eiginleikar hestsins breytast er hægt að hafa samband við VÍS og breyta fjárhæð líftryggingarinnar í samræmi við breytt verðmæti hestsins. Ekki er hægt að líftryggja hest eða hækka vátryggingarfjárhæðina eftir að hesturinn verður 16 vetra. Tryggingin bætir ekki kostnað af völdum veikinda eða meiðsla sem voru til staðar eða áttu sér upphaf áður en tryggingin var keypt.