Ófrjósemistrygging er seld sem viðbót við líftryggingu en bótafjárhæðin má ekki vera hærri en heildarupphæð þeirra líftrygginga sem eru í gildi fyrir stóðhestinn.
Ófrjósemistrygging bætir varanlega skerðingu á frjósemi stóðhests eða missi líkamlegrar getu til að fylja hryssur vegna sjúkdóms eða slyss. Tryggingin er eingöngu fyrir stóðhesta sem hafa sannanlega staðfesta hæfni til að fylja hryssur. Til að tryggingin verði virk á hverju notkunartímabili þurfa 15 hryssur eða fleiri að vera leiddar undir stóðhestinn eða sæddar með sæði hans á hverju tímabili.

Bótafjárhæð ófrjósemistryggingarinnar á að endurspegla það verðmæti sem liggur í stóðhestinum sem ræktunardýri. Ef eiginleikar hestsins breytast er hægt að breyta fjárhæð líftryggingarinnar í samræmi við breytt verðmæti hestsins.

Tryggingin fellur úr gildi eftir að hesturinn verður 16 vetra.

Engin eigin áhætta er í Ófrjósemistryggingu fyrir stóðhesta.

Við töku stóðhestatryggingar þarf að skila inn eftirfarandi:
      - Beiðni, stóðhestaskýrslu og fangavottorði frá Bændasamtökum Íslands

Mjög alvarleg slys geta og hafa orðið í tengslum við hestamennsku og því eru forvarnir mikilvægar. Kynntu þér allt um forvarnir í hestamennsku hér.