Hleð spilara!

Góðhestatrygging

Víðtækasta líf- og afnotamissistrygging sem boðið er upp á og hentar vel fyrir hærri tryggingarfjárhæðir, jafnt í keppni sem í reið.


Afnotamissistryggingin greiðir bætur ef fella þarf hestinn þar sem hann hefur verið úrskurðaður ónothæfur til reiðar eða vinnu í kjölfar sjúkdóms eða slyss. Geti hesturinn lifað áfram að mati dýralæknis og eigandi kýs að halda hestinum greiðast hlutabætur sem eru andvirði dánarbóta að frádregnum 100 þús kr. Skráningu er breytt í WorldFeng þar sem ekki má nota hestin í reið eða keppni.

Líftryggingin greiðir bætur ef hestur deyr eða slasast svo illa að það þurfi að fella hann tafarlaust að mati dýralæknis. Sé hestur felldur greiðast fullar bætur. Líftryggingarfjárhæð á að endurspegla markaðsvirði hestsins en það tekur mið af kaupverði hans og viðurkenndum verðleikum. Ef eiginleikar hestsins breytast er hægt að breyta fjárhæð líftryggingarinnar í samræmi við breytt verðmæti hestsins.

Bótafjárhæð líftryggingarinnar lækkar um 20% þegar hesturinn verður 19 ára og síðan um 20% af eftirstöðvum fjárhæðarinnar hverju sinni við endurnýjun eftir það.

Engin eigin áhætta er í Góðhestatryggingu VÍS.

Við töku góðhestatryggingar þarf að skila inn eftirfarandi:
  •    0 – 300 þús kr        beiðni
  •    301 – 500 þús kr   beiðni og hesturinn skoðaður af skoðunarmanni VÍS
  •    501 – 1 mkr:           beiðni og læknisvottorð
  •    1+  mkr:                   beiðni, læknisvottorð og röntgen myndir

Mjög alvarleg slys geta og hafa orðið í tengslum við hestamennsku og því eru forvarnir mikilvægar. Kynntu þér allt um forvarnir í hestamennsku hér.