Hleð spilara!
Öryggi í hestamennsku
VÍS hefur látið framleiða vandaðan bækling um öryggi í hestamennsku þar sem tekið er á öllum þeim þáttum sem leitt geta til öruggari útreiða – bæði fyrir knapa, hesta og ökumenn.
VÍS hefur verið leiðandi meðal tryggingarfélaga í öryggi meðal hestamanna.
Félagið stóð fyrir öryggisráðstefnu á Selfossi árið 2006 og hélt svo sérstakt öryggisnámskeið á Hvanneyri í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands. Þá hefur VÍS látið framleiða vandaðan bækling um öryggi í hestamennsku þar sem tekið er á öllum þeim þáttum sem leitt geta til öruggari útreiða – bæði fyrir knapa, hesta og ökumenn.
Bæklingurinn var unninn í samstarfi við Landbúnaðarháskólann og Landssamband Hestamannafélaga. Bæklingurinn um Öryggi í hestamennsku er fáanlegur hjá VÍS, öllum að kostnaðarlausu, auk þess sem efni hans er á forvarnahluta vefsvæðisins.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
