Samstarfsaðilar
Landssamband hestamannafélaga
Landssamband hestamannafélaga (LH) eru heildarsamtök 48 hestamannafélaga með um átta þúsund félagsmenn. Stjórn, kosin á landsþingi fulltrúa hestamannafélaganna, og framkvæmdastjóri sinna daglegum rekstri og fylgja eftir ályktunum landsþinganna.
VÍS er einn af aðalbakhjörlum LH
Íslenska landsliðið í hestaíþróttum
Landssamband hestamannafélaga sendir á hverju ári keppnislið til að keppa fyrir Íslands hönd á erlendri grundu. Annað hvert ár er heimsmeistaramót og þar á milli er Norðurlandameistaramót.
VÍS er einn af aðalbakhjörlum íslenska landsliðsins
Landsmót hestamanna
Landsmót eru haldin annað hvert ár og er það stærsti viðburður í íslenskri hestamennsku. Árið 2008 var mótið haldið með glæsibrag á Hellu. Næst verður það haldið á Vindheimamelum í Skagafirði árið 2011. Vegna smitandi hestahósta var mótinu frestað um eitt ár.
VÍS var einn af aðalbakhjörlum Landsmóts 2004, 2006 og 2008
Íslandsmót í hestaíþróttum
Íslandsmót eru haldin ár hvert og eru þau tvískipt, þ.e. eitt mót fyrir börn, unglinga og ungmenni og svo annað fyrir fullorðna.
VÍS hefur verið einn af aðalbakhjörlum Íslandsmóta
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
