Afnotamissistrygging fyrir kynbótahryssur
Þessi trygging er sérhönnuð fyrir kynbótahryssur og innifelur hún afnotamissistryggingu í ræktun og tryggingu fyrir fyl og folöld. Tryggingin er tekin sem viðbót við góðhestatryggingu, reiðhestatryggingu og/eða takmarkaða líftryggingu.
Afnotamissistryggingin miðast við að hryssan verði ónothæf til ræktunar. Bætur úr þessari tryggingu miðast við tiltekna sjúkdóma og atvik sem talin eru upp í skilmálum tryggingarinnar eins og t.d. alvarlega áverka á kynfærum, sjúkdóma og áverka vegna köstunar.
Fylja og folaldatrygging greiðir bætur ef hryssa á aldrinum þriggja til átján vetra lætur fyli, það skilar sér ekki, eða nýfætt folald drepst eða aflífa þarf það innan 30 daga frá fæðingu vegna meiðsla, sjúkdóms eða fæðingargalla.
Til að bætur fáist greiddar þarf hryssan að hafa verið staðfest fylfull af dýralækni og skoðunin átt sér stað í fyrsta lagi 90 dögum eftir að hryssan var síðast hjá stóðhesti.
Hryssur er hægt að tryggja frá þriggja vetra aldri og gildir tryggingin til þess árs sem hryssan verður 23 vetra.
Flest tjón er hægt að tilkynni beint á vefnum eða ná í tjónstilkynningar þegar þörf eru á að slíkar skýrslur séu fylltar út, undirritaðar og komið til næstu þjónustuskrifstofu VÍS. Einnig er þjónustuverið opið daglega á milli 08:00 og 17:30 en neyðarþjónusta þess utan.
Markmið okkar er að bæta alla móttöku tjónstilkynninga og meðhöndlun tjóna eins og mögulegt er því við gerum okkur grein fyrir því að það er þá sem viðskiptavinir þurfa mest á VÍS að halda.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
