Hleð spilara!

Fagleg þjónusta

Hugmyndafræði dýraverndar VÍS er nútímaleg þótt hún eigi sér yfir 120 ára gamla sögu. Eitt af markmiðum okkar er að fjölga dýraeigendum á Íslandi. Ennfremur leggjum við áherslu á bætt lífsgæði dýra og framfarir á sviði dýralækninga.

Framúrskarandi fyrirtæki
Einstök hugmyndafræði býr að baki VÍS Agria Dýraverndar og má rekja sögu hennar til ársins 1890, þegar sænski athafnamaðurinn og frumkvöðullinn Claes Virgin stofnaði dýratryggingafélag sitt, Skandinaviska Kreatursförsäkrings-bolaget. Nafni félagsins var breytt í Agria árið 1970.

Agria hefur eflst til muna á síðustu árum og er afar framsækið fyrirtæki. Það hefur tvisvar sinnum fengið konunglegu gæðaverðlaunin sem eingöngu eru veitt fyrirtækjum sem skara fram úr í Svíþjóð. Ekkert annað íslenskt dýratryggingafélag státar af samstarfi við jafn virta aðila og VÍS.

Velferð dýra, þróun á sviði dýralækninga og rannsóknir á því hvernig dýr geta bætt lífsgæði mannfólksins eru meðal þess sem Agria beitir sér fyrir.

Öflugur stuðningsaðili
Agria á traust og gott samstarf við ýmis hagsmunasamtök, meðal annars sænska hundaræktarfélagið SKK og Íslandshestafélagið í Svíþjóð. Gott samstarf við dýralækna, ræktunarsamtök og önnur hagsmunasamtök eru lykillinn að velgengni Agria. Þá vinnur Agria jafnframt með Manimalis, samtökum sem rannsaka og kynna jákvæð áhrif sem dýr geta haft á mannfólkið. Ennfremur er Agria í góðu samstarfi við ýmsar menntastofnanir sem tengjast dýrum, til dæmis Reiðskólann í Strömsholm og viðurkennda hundaskóla.

Úrval trygginga og persónuleg þjónusta
Úrval trygginga fyrir dýrin er mikið og við leggjum ríka áherslu á persónulega þjónustu. Tryggingar eru sérsniðnar að þörfum hvers og eins viðskiptavinar með það að markmiði að hann fái þá tryggingavernd sem hentar honum.

Til að fá nánari upplýsingar um fjölbreytta tryggingavernd og hagstæð iðgjöld hvetjum við þig til að hafa samband við þjónustufulltrúa okkar í gegnum netfangið vis@vis.is

Einnig geturðu leitað beint til sérfræðinga okkar: