Agria
Agria er gamalgróið og virt fyrirtæki á sviði dýratrygginga sem hefur, allt síðan það var stofnað í Svíðjóð 1890, verið leiðandi á sviði dýratrygginga.
Framúrskarandi fyrirtæki
Agria hefur eflst til muna á síðustu árum og er afar framsækið fyrirtæki. Það hefur tvisvar sinnum fengið konunglegu gæðaverðlaunin sem eingöngu eru veitt fyrirtækjum sem skara fram úr í Svíþjóð. Ekkert annað íslenskt dýratryggingafélag státar af samstarfi við jafn virta aðila og VÍS.
Einstök hugmyndafræði býr að baki VÍS Agria Dýraverndar og má rekja sögu hennar til ársins 1890, þegar sænski athafnamaðurinn og frumkvöðullinn Claes Virgin stofnaði dýratryggingafélag sitt, Skandinaviska Kreatursförsäkrings-bolaget. Nafni félagsins var breytt í Agria árið 1970.
Frumkvöðullinn Claes Virgin
Claes Virgin hafði frá upphafi háleit markmið. Honum var umhugað um velferð málleysingja og þeirra sem minna mega sín. Hann fór ótroðnar slóðir og taldi nauðsynlegt að eingöngu þeir sem hefðu góða þekkingu á dýrum kæmu að sölu dýratrygginga. Dýralæknar voru fyrstu starfsmennirnir sem hann réði til starfa og smám saman mótaðist sú heildstæða stefna sem enn í dag er höfð í heiðri hjá Agria.
Þeir einir geta unnið hjá Agria sem eiga dýr og/eða hafa víðtæka þekkingu á þeim. Með því móti telur félagið sig geta veitt viðskiptavinum sínum bestu mögulegu þjónustu.
Öflugur stuðningsaðili
Agria á traust og gott samstarf við ýmis hagsmunasamtök, meðal annars sænska hundaræktarfélagið SKK og Íslandshestafélagið í Svíþjóð. Gott samstarf við dýralækna, ræktunarsamtök og önnur hagsmunasamtök eru lykillinn að velgengni Agria. Þá vinnur Agria jafnframt með Manimalis, samtökum sem rannsaka og kynna jákvæð áhrif sem dýr geta haft á mannfólkið. Ennfremur er Agria í góðu samstarfi við ýmsar menntastofnanir sem tengjast dýrum, til dæmis Reiðskólann í Strömsholm og viðurkennda hundaskóla.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
