Hleð spilara!

Lögboðin ábyrgðartrygging

Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækja er samsett úr ábyrgðartryggingu ökutækis og slysatryggingu ökumanns og eiganda bílsins.


Ábyrgðartrygging bætir fjárhagslegt tjón, bæði eigna- og líkamstjón, sem ökumaður veldur öðrum með notkun ökutækisins. Tryggingin bætir hinsvegar ekki skemmdir á ökutækinu sjálfu sem veldur tjóninu.

Slysatrygging ökumanns og eiganda gildir fyrir ökumann og eiganda ef hann er farþegi í eigin ökutæki. Ef ökumaður er valdur að slysi fær hann líkamstjón sitt bætt úr þessari tryggingu. Eins ef eigandi ökutækis er farþegi í sínu eigin ökutæki fær hann líkamstjón sitt bætt úr þessari tryggingu. Aðrir farþegar en eigandi eru hins vegar tryggðir í ábyrgðartryggingu ökutækisins.

Ábyrgðartrygging ökutækis og slysatrygging ökumanns og eiganda gilda ekki í aksturskeppni nema keypt sé sérstök keppnistrygging.

Stærsta hlutfall tjónagreiðslna VÍS er vegna umferðatjóna og slysa á fólki. Yfir 90% umferðaslysa má rekja til ökumanna og því er gríðarlega mikilvægt að hver og einn hugi vel að akstri sínum með það að markmiði að forðast umferðarslys. Sjá má allt um forvarnir umferðarinnar hér.

Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækis
Vátryggingin nær til:
• Sérhverrar skaðabótakröfu sem vátryggðum er skylt að vátryggja gegn samkvæmt umferðarlögum nr. 50/1987, sem eigandi eða umráðamaður hins vátryggða ökutækis, vegna tjóns er hlýst af notkun þess.

Vátryggingin bætir ekki:

• Skemmdir á ökutækinu sjálfu eða öðrum eignum vátryggingartaka eða vátryggðs. Þó bætir vátryggingin skemmdir á eigin bifreið vátryggðs af völdum áreksturs hins vátryggða ökutækis.


Lögboðin slysatrygging ökumanns og eiganda
Vátryggingin bætir líkamstjón vegna slyss sem:
• Ökumaður verður fyrir við stjórn hins vátryggða ökutækis samkvæmt 92. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
• Vátryggingartaki verður fyrir sem farþegi í hinu vátryggða ökutæki, eða af völdum þess samkvæmt 92. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

Bílrúðutrygging (Valkvæð)
Vátryggingin bætir:
• Brot á framrúðu, afturrúðu og hliðarrúðum ökutækisins ásamt ísetningarkostnaði. Það telst ekki brot þótt flísist úr rúðu eða hún rispist.

Vátryggingin bætir ekki:
• Rúðu sem brotnar við úrtöku eða ísetningu.
• Tjón vegna afnotamissis ökutækisins þegar rúða brotnar.