Hleð spilara!

Erlendis

Hagnýtar upplýsingar um viðbrögð fyrir þá sem þurfa að nýta sér Slysa- eða sjúkratryggingar erlendis.


Verði slys eða ef upp koma veikindi skal fyrst hafa samband við fararstjóra sem hefur upplýsingar um læknastofur sem Íslendingar viðurkenna á staðnum.

Öryggiskort VÍS

Oftast er nóg að framvísa öryggiskorti VÍS og staðfestingu um gildi vátryggingarinnar á ensku, sem fylgir öllum ferðatryggingum frá VÍS. Öryggiskortið og staðfestinguna er hægt að fá á öllum skrifstofum félagsins eða hafa samband við þjónustuver okkar í síma 560 5000.

Ávallt skal tilkynna tjón til félagsins þó svo að ekki sé um útlagðan kostnað að ræða. Sé um útlagðan kostnað vegna læknis og/eða lyfja að ræða skal gæta þess að geyma allar kvittanir og nótur og skila þeim til félagsins ásamt tjónstilkynningu. Ef hins vegar þarf að greiða fyrir læknisþjónustu og lyf erlendis, skal gæta þess að geyma allar kvittanir og nótur, því félagið endurgreiðir útlagðan erlendan læknis og lyfjakostnað í samræmi við þessar kvittanir og viðeigandi skilmála..

Alvarleg veikindi eða slys erlendis

Ef um alvarleg veikindi eru að ræða eða vátryggður lendir á sjúkrahúsi vegna slyss skal hafa samband við SOS International í síma +(45) 70 10 5050 þar sem er 24 klst þjónusta

Mikilvægt að vanda skýrslugerð

Þegar um slys er að ræða er mjög mikilvægt að vanda sérstaklega til skýrslugerðar. Svara ber af kostgæfni öllum þeim spurningum sem á eyðublaðinu eru. Nákvæm tjónstilkynning leiðir til þess að mál eru afgreidd með skjótari hætti en ella. Það er hinn vátryggði sem fyllir út tjónstilkynningu en það þarf ekki endilega að vera vátryggingartaki. Ef barn vátryggingartaka slasast og fellur undir vátryggingu hans er nægilegt að vátryggingartaki sendi inn tilkynningu.

Hægt er að senda undirritaða tjónstilkynningu í pósti beint til tjónadeildar VÍS í Ármúla 3, 108 Reykjavík, en einnig er hægt að skila henni inn á næstu þjónustuskrifstofu félagsins.