Hleð spilara!

Ökutækjatjón

Hagnýtar upplýsingar um viðbrögð fyrir þá sem hafa orðið fyrir ökutækjatjóni


VÍS er í samstarfi við Aðstoð & öryggi ehf. en það er sjálfstætt og hlutlaust þjónustufyrirtæki sem annast vettvangsrannsóknir umferðaróhappa. Aðstoð & Öryggi aðstoðar við frágang tjónaskýrslu, myndatökur af vettvangi og tjónum. Skýrsla og ljósmyndir eru sendar strax rafrænt til tryggingarfélags. Hægt er að hringja í þjónustusíma A&Ö, 578 9090, alla virka daga frá kl. 7.00–18.30. Þjónustusvæði A&Ö er Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjalarnes. Þjónustan er gjaldfrjáls fyrir viðskiptavini VÍS.

Kveðja ber til lögreglu, verði slys á fólki.

Hvenær og hvernig á að nota tjónstilkynninguna?

Tjónstilkynningin er að evrópskri fyrirmynd, og eru tilkynningar af þessu tagi notaðar í flestum ríkjum Vestur-Evrópu. Tjónstilkynninguna á að nota vegna tjóna á ökutækjum eða tjóna, sem rakin verða til ökutækja.

Árekstur

Við árekstur milli tveggja ökutækja bera að nota eitt sett tjónstilkynningarinnar. Hafi fleiri en tvö ökutæki lent í árekstri verður að nota fleiri en eitt sett. Skulu þá upplýsingar varðandi öll hlutaðeigandi ökutæki koma fram eins og unnt er á hverju setti tilkynningar, sem notað er, og þau undirrituð af öllum ökumönnum. Afstaða allra ökutækjanna (merkt A, B, C, D, o.s.frv.) skal þannig gefin til kynna með afstöðumynd af vettvangi (13. liður tjónstilkynningarinnar).

Útafakstur, ekið á gangandi vegfaranda o.þ.h.

Eigi aðeins eitt ökutæki hluta að máli, t.d. við útafakstur, þegar ekið er á gangandi vegfaranda, ökutæki brennur eða því stolið, ber einungis að fylla út framhlið tilkynningarinnar vinstra megin (A) auk bakhliðar.

Á vettvangi

Ökumaður A og ökumaður B fylla báðir út framhlið tilkynningarinnar vegna ökutækja sinna. Getið er um nafn og heimili hugsanlegra vitna (5. liður), en það er afar brýnt, ef ökumenn eru ósammála um málsatvik. Í 12. lið ber að merkja með x í viðeigandi reiti. Reitir vinstra megin eiga við ökutæki A, en hægra megin eiga við ökutæki B. Mikilsvert er, að fjöldi merktra reita sé tilgreindur fyrir hvort ökutæki um sig. Munið að merkja ökutækin A og B á afstöðumynd af vettvangi (13. liður). Tjónstilkynningin skal undirrituð af báðum ökumönnum og tekur hvor sitt eintak.

Við heimkomu

Þegar heim er komið fylla aðilar sjálfir út bakhlið tilkynningarinnar. Alls ekki má breyta nokkru atriði eða bæta við á framhlið tilkynningarinnar, eftir að aðilar hafa undirritað hana. Aðilum ber síðan að koma tjónstilkynningunni til vátryggingarfélaga sinna hið allra fyrsta.

Árekstur við erlent ökutæki

Verði árekstur við ökutæki, sem skráð er erlendis, og ökumaður þess hefur þessa evrópsku tjónstilkynningu á erlendu máli, mega báðir aðilar nota framhlið þeirrar tilkynningar og eftir atvikum undirrita hana. Einstakir liðir tjónstilkynningarinnar og númer þeirra eru eins, þott tilkynningin sé prentuð á öðru máli.

Athugið vel!

Notið kúlupenna eða velyddan blýant við útfyllingu tilkynningarinnar, þannig að bæði frumrit og afrit verði læsileg. Skrifið ekki á bakhlið tilkynningarinnar fyrr en eintökin, þ.e. frumrit og afrit, hafa verið skilin að. Hafi tjónstilkynning verið notuð, hún skemmst eða týnst, ber mönnum að fá nýtt eintak hjá vátryggingafélagi sínu.

Tjónaskoðun

Vinsamlega kynntu þér lista yfir þau þjónustufyrirtæki sem viðskiptavinir VÍS geta leitað til vegna skemmda á ökutæki (CABAS verkstæði) eða vegna framrúðutjóna.

CABAS er, í stuttu máli, tjónamatskerfi fyrir verkstæði til að meta viðgerðarkostnað vegna skemmda á ökutæki. Með tilkomu CABAS þurfa eigendur ökutækja ekki lengur að fara á næstu skoðunarstöð VÍS til að láta meta tjónið heldur geta þeir snúið sér beint til næsta CABAS verkstæðis sem VÍS hefur samið við um kaup á þjónustu.

Hér finnur þú nánari upplýsingar um CABAS.

Tjónstilkynning skal ávalt vera til taks í ökutækjum. Tjónstilkynninguna er unnt að fá á öllum skrifstofum VÍS, hjá Frumherja, Aðalskoðun og á bensínstöðvum. 

Tjónstilkynningin er að evrópskri fyrirmynd, og eru tilkynningar af þessu tagi notaðar í flestum ríkjum Vestur-Evrópu. Tjónstilkynninguna á að nota vegna tjóna á ökutækjum eða tjóna, sem rakin verða til ökutækja.

Tjónstilkynningunni ber að skila í tvíriti með undirskrift frá báðum aðilum málsins. 

VÍS er í samstarfi við Aðstoð & öryggi ehf. en það er sjálfstætt og hlutlaust þjónustufyrirtæki sem annast vettvangsrannsóknir umferðaróhappa. Aðstoð & Öryggi aðstoðar við frágang tjónaskýrslu, myndatökur af vettvangi og tjónum. Skýrsla og ljósmyndir eru sendar strax rafrænt til tryggingarfélags. Hægt er að hringja í þjónustusíma A&Ö, 578 9090, alla virka daga frá kl. 7.00–18.30. Þjónustusvæði A&Ö er Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjalarnes. Þjónustan er gjaldfrjáls fyrir viðskiptavini VÍS.

Tjónaskoðun

Vinsamlega kynntu þér lista yfir þau þjónustufyrirtæki sem viðskiptavinir VÍS geta leitað til vegna skemmda á ökutæki (CABAS verkstæði) eða vegna framrúðutjóna.

CABAS er, í stuttu máli, tjónamatskerfi fyrir verkstæði til að meta viðgerðarkostnað vegna skemmda á ökutæki. Með tilkomu CABAS þurfa eigendur ökutækja ekki lengur að fara á næstu skoðunarstöð VÍS til að láta meta tjónið heldur geta þeir snúið sér beint til næsta CABAS verkstæðis sem VÍS hefur samið við um kaup á þjónustu.

Hér finnur þú nánari upplýsingar um CABAS.

Hvað bætir ábyrgðartrygging ökutækis?

Sá sem ber ábyrgð á ökutæki skal bæta það tjón sem af því hlýst vegna notkunar þess. Í umferðarlögum kemur enn fremur fram að greiðsla á bótakröfu vegna tjóns, sem hlýst af notkun ökutækis, skal vera tryggð með ábyrgðartryggingu hjá viðurkenndu vátryggingafélagi. Ábyrgðartrygging ökutækis sem er í órétti bætir líkamstjón allra hlutaðeigandi nema líkamstjón ökumanns þess og eiganda. Einnig bætir ábyrgaðartrygging ökutækis munatjón sem valdið er með því

Samkvæmt umferðarlögum er skylt að tryggja öll skráningarskyld vélknúin ökutæki með ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda. Auk lögboðnu trygginganna býður VÍS upp á víðtækar frjálsar tryggingar og ættu viðskiptavinir því að geta tryggt ökutæki sín eins vel og vera má

Ávallt skal hafa eyðublað fyrir tjónstilkynningu í ökutæki. Tjónstilkynningu er unnt að fá á öllum skrifstofum VÍS, hjá Frumherja, aðalskoðun og á bensínstöðvum. Tjónstilkynningunni ber að skila í tvíriti með undirskrift frá báðum aðilum málsins. VÍS er í samstarfi við Aðstoð & Öryggi ehf. um aðstoð á vettvangi vegna umferðaróhappa á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn Aðstoðar & Öryggis koma á staðinn og aðstoða við útfyllingu á tjónaskýrslu ásamt því að taka myndir af vettvangi og tjónum.

Bílaleigubíll

Tjónþolar sem eiga rétt á bótum úr ábyrgðartryggingu ökutækis hjá VÍS fá bætur fyrir afnotamissi ökutækis.

Um tvennt er að velja í því efni, annars vegar greiðir félagið fyrir bílaleigubíl eða hins vegar dagpeninga vegna afnotamissis eftir ósk tjónþola. Afnot bílaleigubíls miðast við eðlilegan viðgerðartíma ökutækis. Félagið ber ekki ábyrgð á Km akstri en sumar bílaleigur hafa ákveðinn Km akstur innifalinn í gjaldi sínu. Ef um er að ræða tjón sem greitt er úr kaskótryggingu ökutækis og viðkomandi vátryggingartaki er með Fplús1,2,3,4eða Heimilistryggingu þá á hann rétt á að fá bílaleigubíl til afnota í allt að 5 daga með sömu skilmálum og í ábyrgðartryggingunni. Ekki eru greiddar bætur vegna afnotamissis þegar um kaskótjón er að ræða.

Forsenda þess að tjónþoli fái bílaleigubíl til afnota er aðbeiðni um bílaleigubíl komi frá bílaleigu með samning hjá félaginu. Sá sem ætlar að leigja sér bílaleigubíl þarf að jafnaði að vera tvítugur að aldri. Ekki er greiddur afnotamissir fyrir þann tíma sem viðgerð tefst vegna þess að varahlutir, sem þarf til viðgerðarinnar, eru ekki fáanlegir.

Uppgjör tjóns

Þegar tjón á ökutæki hefur verið metið er tekin ákvörðun um hvaða leiðir skulu farnar við uppgjör þess. Tjónþoli velur verkstæði sem er viðurkennt af VÍS og sér félagið um að greiða viðgerðarkostnaðinn ( að frádreginni eigin áhættu ef um kaskótjón er að ræða.) Ef tjónið er það mikið að ekki svarar kostnaði að gera við ökutæki að mati félagsins, kaupir félagið ökutækið af tjónþola. Fjárhæð miðast við markaðsverð ökutækis eða sambærilegs ökutækis, þ.e. staðgreiðsluverð þess. Ef um ábyrgðartjón er að ræða greiðir félagið samkomulagsbætur ef tjónþoli fer fram á það.