Bótasvið

Farmtrygging bætir tjón á vöru í flutningi með viðurkenndum flutningsaðila. Almenna reglan er sú að vátrygging hefst þegar flutningsaðili hefur tekið við vöru og lýkur þegar hann hefur komið vörunni á áfangastað. Söluskilmálar og aðrir þættir hafa þó áhrif varðandi farmtryggingu og á eigandi vöru að kynna sér slíkt áður en farmtrygging er tekin, s.s. hvenær ábyrgð hans á vörunni hefst og/eða lýkur. Farmtrygging er skaðatrygging þannig að ekki er bætt afleitt tjón.

Mismunandi bótasvið eftir skilmálum

Skilmálar farmtrygginga VÍS eru tvenns konar, A og B.

Bótasvið farmtryggingar er mismunandi eftir því hvaða skilmáli gildir.

A skilmáli er víðtækur skilmáli og bætir hann hlutatjón á vöru, s.s. þjófnað og skemmdir vegna óhappatilvika í flutningi. Eins og komið hefur fram eru afleidd tjón aldrei bætt með farmtryggingu.

B skilmáli er oft nefndur "takmarkaður" skilmáli en hann bætir altjón á einstaka einingum ásamt sameiginlegum björgunarkostnaði m.a. Mælt er með að kynna sér skilmálana frekar á heimasíðu VÍS.