Vatnstjón
Hagnýtar upplýsingar um viðbrögð fyrir þá sem hafa orðið fyrir tjóni sökum vatns.
Ef vatnstjón verður er mikilvægt að reyna að koma strax í veg fyrir áframhaldandi vatnsrennsli. Ef lögn í húsinu hefur t.d. gefið sig og vatn flæðir um húsið þarf að loka strax fyrir vatnsinntak og forða lausum hlutum sem lent hafa í vatni.
Neyðarnúmer lögreglu og slökkviliðs er 112.
Þjónustuver VÍS veitir frekari upplýsingar. Þú getur ennfremur fengið leiðbeiningar með því að senda okkur tölvupóst á netfangið upplysingar@vis.is. Sé hins vegar brýn þörf á aðstoð, er tjónavakt hjá eignatryggingum VÍS allan sólarhringinn í síma 560-5070.
Bótasvið
Heimilis- og húseigendatryggingar bæta tjón vegna vatns sem óvænt og skyndilega streymir úr leiðslum húsa og á upptök innan veggja þess. Ef vatnstjón hefur orðið af fyrrgreindum orsökum er nauðsynlegt að takmarka tjónið eins og kostur er. Það er ekki hægt að gera sér fulla grein fyrir því tjóni sem orðið hefur fyrr en réttu rakastigi er aftur náð í húsnæðinu.
Tjón vegna utanaðkomandi flóða, grunnvatns eða úrkomu bætist ekki, þó bætist tjón vegna úrhellis eða asahláku ef yfirborðsvatn er það mikið að frárennslisleiðir hafa ekki undan. Aldrei er bætt tjón vegna vatns frá þökum, þakrennum eða frá svölum.
Ef vatn lekur frá nágrannaíbúð getur komið upp flókið lögfræðilegt úrlausnarefni. Ef tjónið er vegna skyndilegs leka úr leiðslum bætir húseigendatryggingin tjónið sem verður á fasteign vegna þessa. Ef um er að ræða leka vegna vanbúnaðar eða viðhaldsleysis getur eigandi húsnæðisins orðið skaðabótaskyldur gagnvart þeim sem tjónið verður hjá. Húseigendatryggingin er með ábyrgðartryggingu húseigenda sem getur tekið til þessara mála, en þar sem skaðabótaábyrgð er oft flókið lögfræðilegt úrlausnarefni, ber vátryggðum að leita samráðs við VÍS um réttarstöðu sína ef gerð er krafa á hendur honum.
Í hverju vatnstjóni ber tjónþoli eigin áhættu sem er skráð í vátryggingaskírteinið. Auk þess ber honum að greiða fyrir hlutinn er olli tjóninu, svo sem rörin og vinnu við endurlögn eða lagfæringu þeirra.
Eru bótagreiðslur vegna eignatjóna skattskyldar?
Skaðabætur og vátryggingarbætur vegna tjóns á eignum sem ekki eru notaðar í atvinnurekstri teljast ekki til tekna með þeirri undantekningu þó að bætur fyrir altjón teljast söluhagnaður og skattleggjast samkvæmt því.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
