Tilkynna skal innbrot og þjófnað þegar í stað til lögreglu og gefa
sem nákvæmasta lýsingu á því sem hefur verið stolið og/eða skemmt.
Nákvæmni í skýrslugjöf hjá lögreglu auðveldar mjög framgang mála hjá
félaginu. Ef gluggar eru brotnir og/eða hurðir skemmdar það mikið að
ekki er hægt að loka húsinu geta starfsmenn eignatjóna VÍS aðstoðað við
nauðsynlegar bráðaviðgerðir.
Þjónustuver VÍS veitir frekari upplýsingar. Enn fremur er hægt að fá leiðbeiningar með því að senda okkur tölvupóst á netfangið upplysingar@vis.is. Sé hins vegar brýn þörf á aðstoð, er tjónavakt hjá eignatryggingum VÍS allan sólarhringinn í síma 560-5070.
Athygli skal vakin á því að innbústryggingar taka ekki til muna sem eru í umsjá vátryggingartaka en eru eign annarra.
Uppgjör innbrotstjóna fer fram einum mánuði frá tjónsdegi, ef rannsókn lögreglu hefur engan árangur borið.