Barnabílstólar VÍS - barn þarf þrjá bílstóla á þroskaskeiði sínu
Barn þarf þrjá bílstóla á þroskaskeiði sínu, svo að hámarksöryggi sé tryggt og öryggisbúnaður henti stærð barnsins. Það er hagkvæmt að leigja barnabílstóla frá VÍS, því auðvelt er að skipta stólunum út þegar barnið stækkar. Með því að gera kaupsamning við VÍS færðu afnot af öllum stólunum sem barnið þarf á að halda á þroskaskeiði sínu.
kg0 - 13
mán.0 - 12
vísunAftur
BeSafe iZi-Sleep
0 - 13 kg (0 - 12 mánaða) - bakvísandi
BeSafe iZi Sleep er barnabílstóll sem uppfyllir kröfur nútímans um öryggi og þægindi og er fyrir nýfædd börn og allt upp í 13 kg. Stólinn skal festa með bakið í akstursstefnu með þriggja punkta belti.

kg9-18
ár1-3
vísunAftur
BeSafe iZi Kid (Á BIÐLISTA)
9-18 kg (1-3 ára) - bakvísandi
BeSafe iZi Kid er bakvísandi barnabílstóll og einn allra öruggasti barnabílstóll sem völ er á. Stólinn skal festa með bakið í akstursstefnu með þriggja punkta belti bílsins. 4 vikna biðlisti er eftir þessum stól sem stendur.

kg9-18
ár1-3
vísunFram
BeSafe iZi comfort (Á BIÐLISTA)
9-18 kg (1-3 ára) - framvísandi
BeSafe iZi Comfort er framvísandi barnabílstóll og uppfyllir kröfur nútímans um öryggi og þægindi. Auk þess sem barnið sér vel út og getur fylgst með umhverfinu. Tveggja vikna biðlisti er eftir þessum stól sem stendur.

kg15-36
ár4-12
vísunFram
BeSafe 1-2-3 (Á BIÐLISTA)
15-36 kg (4-12 ára) - framvísandi
BeSafe 1-2-3 vex með barninu. Það er hægt að hæðarstilla bakið svo að það henti stærð barnsins til að tryggja því hámarksöryggi.

